Morgunblaðið - 15.10.2008, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 15.10.2008, Qupperneq 12
12 MIÐVIKUDAGUR 15. OKTÓBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ Bankakreppa FRÉTTASKÝRING Eftir Helga Bjarnason helgi@mbl.is VERIÐ er að athuga hvernig ríki og Reykjavíkurborg geti tekið við fram- kvæmdum við tónlistarhúsið við Reykjavíkurhöfn. Markmiðið er að bjarga verðmætum með því að koma í veg fyrir að framkvæmdir stöðvist. Taki opinberir aðilar við húsinu er líklegt að þeir tæpu tíu milljarðar kr. sem þegar hafa verið lagðir í bygg- inguna fylgi. Eignarhaldsfélagið Portus hf. samdi við ríkið og Reykjavíkurborg um að byggja tónlistar- og ráð- stefnuhús við Austurhöfnina í einka- framkvæmd. Þrátt fyrir fjárhagserf- iðleika eigendanna, Landsbankans og Nýsis, hefur Portus getað staðið í skilum við verktaka, eftir því sem næst verður komist. Félagið hafði fjármögnun til ákveðins tíma, áður en bankarnir fóru í þrot, en fresturinn sem menn hafa til að ganga frá fram- haldinu er að styttast. Íslenskir aðalverktakar hafa hægt á framkvæmdum í samráði við þá sem standa fyrir verkefninu. Ekki er lengur unnið á nóttunni. Tekið við félagi eða samningi? Félag í eigu ríkis og Reykjavík- urborgar, Austurhöfn-TR ehf., hefur það hlutverk að sjá til þess að tónlist- arhúsið rísi og komist í rekstur. Stef- án Hermannsson framkvæmdastjóri segir að verið sé að fara yfir alla val- kosti í stöðunni núna en að lokum verði eigendur félagsins að koma að ákvörðunum. Málið er flókið úrlausnar, meðal annars vegna annarra verkefna sem eru á lóðinni við Austurhöfn og Por- tus á aðild að. Samningar Aust- urhafnar við Portus kveða á um að Austurhöfn geti gengið inn í samn- inga Portusar við verktakann og tek- ið framkvæmdina yfir. Helgi S. Gunn- arsson, framkvæmdastjóri Portusar, segir að Austurhöfn geti vissulega gert það en þurfi þá að greiða inn í þrotabú félagsins þá fjármuni sem lagðir hafa verið í húsið. Þar er um að ræða hátt í tíu milljarða króna, þar af um tveir milljarðar í eigin fé sem Landsbankinn og Nýsir hafa lagt fram. Áætlað er að húsið kosti alls um 15 milljarða. Stjórnendur Portusar leggja til að Austurhöfn fari frekar þá leið að kaupa eða taka yfir Eign- arhaldsfélagið Portus og tengd félög. Telur Helgi að auðveldara verði að halda framkvæmdinni áfram með þeim hætti. Þá sé minni hætta á að samningssamband við verktaka rakni upp og framkvæmdin stöðvist. Stjórnendur hjá Reykjavíkurborg hugsa til þess með hryllingi ef fram- kvæmdir við tónlistarhúsið stöðvast. Búið er að leggja mikla orku og fjár- muni í þessa uppbyggingu og hætt við að verðmæti glatist ef mannvirkin þurfa að standa í núverandi ástandi, opin fyrir veðri og vindum. Erfitt að fá peninga Fjármögnun áframhaldandi fram- kvæmda við tónlistarhúsið er aug- ljóslega eitt mesta vandamálið nú. Lánsfé fæst ekki erlendis og ekki mikið fé laust á markaði hér innan- lands. Nýi Landsbankinn tekur væntanlega við öllum skuldum Port- usar og ef ríkið og Reykjavíkurborg kaupa fyrirtækið er ríkið beggja vegna borðsins. Það gæti auðveldað fjármögnun í bili, þar til unnt verður að fá lán til lengri tíma hjá Norræna fjárfestingarbankanum eins og til hefur staðið. Tónlistarhúsið er þegar á eftir áætlun og verður örugglega ekki opn- að 1. desember 2009 eins og áformað var. Verið er að ræða þá möguleika að hægja enn frekar á fram- kvæmdum, ef erfiðlega gengur að fá fjármagn, og jafnvel að taka húsið í notkun í áföngum. Morgunblaðið/RAX Þokast nær Framkvæmdir eru enn í gangi við tónlistarhúsið í miðbæ Reykjavíkur, þótt ekki sé lengur unnið á nóttunni. Risastór glerhjúpur sem nota á til að loka húsinu er í smíðum erlendis. Leita leiða til yfirtöku  Hægt hefur verið á framkvæmdum við tónlistarhúsið við Reykjavíkurhöfn  Austurhöfn kannar hvernig best sé að taka við mannvirkinu þannig að vinna stöðvist ekki og verðmæti glatist ekki FRÉTTASKÝRING Eftir Ylfu Kristínu K. Árnadóttur ylfa@mbl.is ERFITT er að segja til um áhrif banka- kreppunnar og efnahagsástandsins á fast- eignamarkaðinn hérlendis með nokkurri vissu, enn sem komið er. Að sögn Eddu Rósar Karlsdóttur hagfræðings er ekki hægt að byrja að spá fyrir um hvernig markaðurinn og verðið muni breytast því á meðan gjaldeyrismarkaður og utanrík- isviðskipti eru í óvissu og upplausn er erfitt að spá fyrir um grundvallarþætti á borð við kaupmátt, atvinnustig og byggingarkostnað. Hætta á fólksflótta Edda Rós segir afar mikilvægt að ná tök- um á krónunni og ná trausti í viðskiptum við útlönd þar sem það sé forsenda fyrir ut- anríkisviðskiptum. Ásgeir Jónsson, for- stöðumaður greiningardeildar Kaupþings, tekur undir að erfitt sé að segja til um út- komuna. Hann býst þó frekar við því að fasteignaverð muni gefa töluvert eftir og taka að lækka á næsta ári. Hann segir kröf- una á íbúðabréfum hafa lækkað töluvert og því megi búast við að langtímavextir lækki einnig. Fjármögnun verði auðveldari og ódýrari en samtímis megi búast við sam- drætti í hagkerfinu. Tekjur fólks lækki, at- vinnuleysi aukist og það muni draga mátt úr fasteignamarkaðinum. Búast má við að nánast allt eignaverð í landinu gefi eftir Fjöldi auðra, nýrra íbúða mun einnig hafa áhrif á fasteignaverðið auk þess sem fleiri íbúðir munu standa tómar þegar erlent vinnuafl heldur til síns heima, eins og er að gerast í auknum mæli. Ásgeir segir að þeg- ar fólk sé óvisst með stöðu efnahagsmála leggi það ekki út í stórar fjárfestingar. Ljóst sé að vilji til húsnæðiskaupa muni dragast saman á næstunni. Þá bendir hann á að reynslan sýni að í miklu atvinnuleysi flytji Íslendingar einnig úr landi. Búast megi við því núna þó misjafnt sé eftir at- vinnugreinum hversu auðveldlega fólk geti fengið vinnu erlendis. „Það má búast við því að eiginlega allt eignaverð í landinu muni gefa eftir í kjölfar gjaldþrota bankanna og við munum vænt- anlega sjá einhverja lækkun á fast- eignamarkaði. Síðan krónan féll síðasta mars hefur velta minnkað verulega í kjölfar hækkandi verðbólgu og versnandi efnahags- skilyrða. Hinsvegar að hafa í huga að þjóð- inni fjölgar tiltölulega hratt og við getum hæglega séð leigumarkað byggjast upp til þessa að mæta aukinni eftirspurn,“ segir Ásgeir. Óvissa um fasteignamarkað  Hagfræðingar eru sammála um að erfitt sé að segja fyrir um áhrif efnahagsástandsins á fasteigna- markaðinn og íbúðaverð  Líkur eru þó leiddar að því að fasteignaverð muni gefa eftir og lækka Edda Rós Karlsdóttir Ásgeir Jónsson Hvernig stendur framkvæmdin? Bygging tónlistarhúss við Austur- höfnina er um það bil hálfnuð og bú- ið að semja um flesta þá verkþætti sem eftir eru, bæði á vegum eiganda hússins og verktaka. Mörg samn- ingsverk eru unnin erlendis. Þá er vinna hafin við bílastæðahús. Hver á húsið? Tónlistarhúsið er byggt í einka- framkvæmd. Eignarhaldsfélagið Por- tus hf. sem er í eigu Landsbankans og Nýsis er eigandi mannvirkjanna og ætlaði að reka húsið. Samið var um að ríkið og Reykjavíkurborg myndu greiða það til baka á 35 ár- um, auk rekstrarstyrkja, og var áformað að greiðslurnar hæfust þegar húsið kæmist í rekstur. Hvað með hin húsin á svæðinu? Fyrirhugað var að reisa hótel og við- skiptamiðstöð í tengslum við tónlist- arhúsið og nýjar höfuðstöðvar Landsbankans. Búið er að vinna töluvert í lóðum þessara bygginga og eitthvað að hönnun. Hótelbygg- ingu var frestað vegna skipulags- mála og viðskiptamiðstöð vegna að- stæðna á fjármagnsmarkaði. Vegna þrots Landsbankans og minnkandi starfsemi er ekki við því að búast að nýjar höfuðstöðvar rísi í bráð. S&S INGIBJÖRG Þórðardóttir, formaður Félags fasteignasala, segir ástandið á fast- eignamarkaðnum afskaplega erfitt. „Auð- vitað finnum við fyrir þessu þunga höggi eins og allir aðrir,“ segir hún og bætir við að þar að auki sé að draga nær jólum en reynslan sýni að þá róist markaðurinn. 70% samdráttur hefur verið á fast- eignamarkaðnum á þessu ári en hins vegar bendir Ingibjörg á að aldrei hafi verið jafn- mikið af peningum úti hjá fólki og í dag. Bú- ið sé að taka mikið fjármagn úr bönkunum og eigi það kannski eftir að leita að ein- hverju leyti út á fasteignamarkaðinn. Ingibjörg segir fasteignasala hafa orðið vara við að Íslendingar, sem búa erlendis, hringi og forvitnist um eignir. „Þeir sjá kauptækifæri til að festa sér fasteign hér. Það má segja að fasteignaverðið sé helm- ingi lægra en fyrir ári síðan, miðað við gengi krónunnar,“ segir hún. „Það er engin holskefla en fólk sér greinilega tækifæri.“ Finna fyrir þungu högginu

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.