Morgunblaðið - 15.10.2008, Blaðsíða 24
24 MIÐVIKUDAGUR 15. OKTÓBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Síðumúla 11, 2. hæð • 108 Rvk • Sími 575 8500 • Fax 575 8505
Pálmi
Almarsson
lögg. fast.saliFasteignamiðlun var stofnsett árið 1979 af Sverri Kristjánssyni
Sverrir
Kristjánsson
lögg. fast.sali
Erum að hefja sölu á 3ja og 4ra herb. lúx-
usíbúðum með sérinngangi í nýju húsi við
Gulaþing 34-44 í Kópavogi, ásamt inn-
byggðum bílskúrum. Afhending í maí 2009.
Húsið er einangrað og klætt að utan með
álklæðingu. Íbúðirnar afhendast fullbúnar
að innan án gólfefna en það verða flísar á
bað- og þvottaherbergi. Til sölu eru átta
3ja herb. íbúðir ca 133–146 fm auk 35–42
fm bílskúrs, verð frá 39.000.000. Einnig eru
til sölu fjórar 4ra herb. íbúðir ca 146–160
fm auk 35–42 fm bílskúrs, verð frá
41.600.000. Byggingaraðili er Bygging ehf.
Sjá nánar á fasteignamidlun.is
GULAÞING 34-44 - KÓP.
www.fasteignamidlun.is Opið mán. til fim. 9-17, fös. 9.00-16.30.
ENGINN veit
hversu mikil verð-
mæti eru eftir í fyr-
irtækjum útrás-
armanna. Það sem
við vitum er að ætlast
er til að við, þessar
300.000 hræður,
borgum helmingi fleiri
sparifjáreigendum er-
lendis. Við berum
ábyrgð, hvernig sem
á því stendur. Skuld-
lausa Ísland heyrir
sögunni til. Við virð-
umst vera komin aft-
ur til þess tíma þegar
allt var í ólestri.
Þjóðarsáttin var til
einskis. Ísland virkar
ekki. Eða hvað?
Hvernig getum við
komið okkur út úr
þessu klúðri, án þess
að skuldsetja þjóðina
áratugi fram í tímann? Hvernig
getum við endurheimt tand-
urhreint mannorðið sem er nú jafn
fjarlægt og sjálfstæði Tíbets?
Hvernig getum við komið í veg
fyrir að svona gerist aftur?
Hvernig getum við haldið okkar
sjálfstæði, efnahagslegu og póli-
tísku?
Alger uppstokkun er sennilega
það eina sem virkar. Ísland er
hrunið, brunnið til grunna og það
hefur lítið upp á sig að reyna að
gera við. Við verðum að byrja upp
á nýtt, hugsa dæmið frá grunni.
Ég tel að það besta sem við getum
gert í stöðunni sé að sættast við
nágrannaþjóðirnar, hversu sárt
sem það er. Við verðum að vinna
aftur velvild heimsins, almennings
að minnsta kosti. Þegar komið er
á hreint hvað við skuldum, yrði
sett þjóðstjórn fólks úr öllum
flokkum og utan flokka. Besti
maður í starfið yrði ráðinn, hvort
sem hann væri stjórnmálamaður
eða ekki. Forsætisráðherra yrði
sterkur maður (eða kona) með af-
gerandi stjórnunarhæfileika. Fjár-
málaráðherra yrði einstaklingur
með vit á fjármálum. Mér dettur
Ragnar Önundarson í hug þar sem
hann sá þetta fyrir og reyndi að
vara okkur við, en það getur verið
að betra fólk finnist. Svona yrði
stjórnin skipuð fólki sem hefði vit
og áhuga á að koma okkur út úr
kviksyndinu sem við erum búin að
festa okkur í. Stjórn Seðlabankans
yrði stokkuð upp á sama hátt.
Allt það fólk sem tæki sæti í
stjórn landsins og bankans mætti
ekkert hafa með vandann að gera
sem kominn er upp. Það yrði að
vera yfir allan vafa
hafið, því hlutleysi
gagnvart fyrirtækjum
og ákvörðunum síð-
ustu ára yrði að vera
tryggt.
Þegar stjórnkerfi
landsins væri komið í
gagnið og versta
óveðrið gengið yfir,
yrði að skoða hvað
gerðist. Hverjir eru
sekir um spillingu,
sofandahátt eða annað
sem orsakaði hrunið.
Það fólk yrði sótt til
saka og látið bera
ábyrgð á sínum
ákvörðunum. Allar
eignir sem tengdust
bönkunum yrðu tekn-
ar upp í skuldir. Það
er óvenjulegt að fyr-
irtæki beri ábyrgð á
einhverju utan eigin
kennitölu, en tímar
formsatriða eru liðnir.
Kennitöluflakk á ekki
lengur við. Glitnir var
ekki bara Glitnir og
dótturfélög. Glitnir
var í eigu Baugs og annarra fé-
laga. Baugur á því að ganga upp í
greiðslur. Þjóðin á ekki að þurfa
að borga úr eigin vasa, vegna
formsatriða með kennitölur. Jón
Ásgeir á ekki Baug eftir það sem
hefur gerst. Við eigum Baug og öll
dótturfyrirtæki. Dugi þau fyrir
skuldum og hafi Jón Ásgeir ekki
gert neitt saknæmt, getur hann
fengið restina til baka. Á meðan
það er að koma í ljós, tæki ríkið
við fyrirtækjunum. Seljist Deben-
hams ekki fyrir þokkalegt verð nú
vegna ástands á alþjóðamörk-
uðum, heldur ríkið því þangað til
almennilegt verð fæst, hvort sem
það er eftir þrjá mánuði eða þrjú
ár. Það sama á við um alla hina
sem komu okkur á hausinn.
Stjórnmálamenn og flokkar yrðu
líka að gera hreint fyrir sínum
dyrum og yrðu rannsakaðir.
Margir hafa sennilega verið orð-
aðir við spillingu en voru ekki
spilltir. Þeirra nafn yrði hreinsað,
meðan aðrir yrðu látnir svara til
saka. Nú er tækifæri til að gera
Ísland að því spillingarlausa landi
sem útlendingar héldu að það
væri. Þetta er kannski eitthvað
svipað og IMF myndi gera, en er
ekki betra ef við gerum þetta
sjálf?
Þegar þessi mál eru komin á
hreint getum við sætt okkur við
þær skuldir sem eftir eru, hugs-
anlega leitað réttar okkar gagn-
vart öðrum þjóðum sem brugðust
og litið fram á veginn í besta landi
í heimi.
Þjóðstjórn
Vilhjálmur Geir Ás-
geirsson skrifar um
ástand efnahags-
mála og ráð við
vandanum
» Alger upp-
stokkun er
sennilega það
eina sem virkar.
Við verðum að
byrja upp á
nýtt, hugsa
dæmið frá
grunni.
Höfundur er kvikmynda-
gerðarmaður í Hollandi.
Vilhjálmur Geir
Ásgeirsson
HVERS vegna hafa íslensk
stjórnvöld verið treg til að leita
aðstoðar Alþjóðagjaldeyrissjóðs-
ins (IMF) í þeim þrengingum sem
nú steðja að? Ef að er gáð er svar-
ið við þessari spurningu einfalt:
Að leita á náðir IMF felur í sér að
viðurkennt er á alþjóðavettvangi,
að sá hugmyndaheimur sem verið
hefur ríkjandi í íslensku þjóð-
félagi undanfarin tíu ár, eða svo,
hafi beðið algjört og fullkomið
skipbrot.
Hver einasti Íslendingur hefur
orðið var við þennan hug-
myndaheim á eigin skinni, því að
meginstoðir hans hafa tekið að
gegnsýra hvern krók og kima í ís-
lensku samfélagi. Bókstafstrú á
markaðslögmál og eiginhags-
munasemi, og blind andúð á sam-
hjálparvitund og nægjusemi.
Segja má, að litlu hafi mátt muna
að heil kynslóð Íslendinga fengi
þennan hugmyndaheim í vöggu-
gjöf, og að hann yrði grundvöllur
sjálfsmyndar þeirra einstaklinga
sem tilheyra þessari kynslóð.
Eins og ráðamenn hafa margoft
ítrekað undanfarna daga er ekki
talin hætta á þjóðargjaldþroti. Í
veraldlegum skilningi munum við
hafa þetta af. En hin nýja þjóð-
arsjálfsmynd sem við vorum
smám saman að tileinka okkur er
rústir einar. Þess vegna er þjóðin
ráðvillt og full angistar: Hún veit
ekki lengur hver hún er, og veit
þar af leiðandi ekki hvernig hún á
að bregðast við.
Kristján G. Arngrímsson
Algjört skipbrot
Höfundur er heimspekingur.
SKULDIR Íslend-
inga eru margfaldar á
mannsbarn miðað við
það sem við sjáum í
nágrannalöndum okk-
ar og erfiðleikar okk-
ar í bankakreppunni
eru það versta sem
við höfum séð í sam-
bærilegri kreppu. Af
þessu hafa fjölmargir
dregið þá ályktun að um þjóð-
argjaldþrot sé að ræða og að land-
ið eigi sér nú enga leið út úr vand-
anum aðra en að kalla hér til
Alþjóðagjaldeyrissjóðinn (IMF) og
fela honum stjórn mála.
Í þessu er fólgin mikil einföldun.
Einkanlega vegna þess að höfða-
töluútreikningar á skuldastöðu
segja ekki nema hálfa sögu. Með
sama hætti er hægt að benda á að
náttúruleg auðævi Íslendinga eru
margfalt meiri en nokkurrar ann-
arrar vestrænnar þjóðar, ef reikn-
að er út frá höfðatölu. Raunhæfast
er kannski að meta annarsvegar
auðlindir þjóða og hinsvegar
skuldir en sleppa ómegðinni. Í
þeim samanburði er næsta víst að
staða Íslands er öfundsverð eins
og starfsmenn IMF höfðu reyndar
á orði í heimsókn sinni hingað í
sumar.
IMF dæmir sig úr leik
En er kannski farsælasta leiðin
að fela IMF hin pólitísku völd á
Íslandi? Ég leyfi mér að efast um
að svo sé. Í fyrsta lagi þá hefur
þegar komið fram að IMF gerir
ákveðnar kröfur vegna þeirrar
deilu sem sprottin er upp milli
Bretlands og Íslands og hefur þar
með dæmt sig úr leik. Þar er afar
mikilvægt að íslensk stjórnvöld
haldi á málum af festu og láti ekki
ómerkilegan áróður Gordons
Browns afvegaleiða umræðuna.
Við hann er ekkert að tala nema
fyrir dómstólum.
Fyrir kratanum breska er Ís-
land það sem Falklandseyjar voru
Margréti Thatcher. Mannkynssaga
síðustu alda er ekki síst saga af
ósanngirni breska heimsveldisins
gagnvart öllum þeim sem þeir
hafa getað haft undir. Árangur
okkar í landhelgisdeilum 20. aldar
eru einar af örfáum undantekn-
ingum þar frá. Ef
deila þessi er falin yf-
irþjóðlegu valdi verða
sjónarmið smáþjóðar
mjög fyrir borð borin.
Um helgina vöruðu
þeir Ragnar Önund-
arson og Þráinn Egg-
ertsson við því í fjöl-
miðlum að íslenska
ríkið tæki á sig af-
arkosti og vísuðu í því
samhengi til Versala-
samninganna 1919. Ef
Ísland gengst IMF á
hönd höfum það ekki
lengur í hendi okkar hver nið-
urstaðan í fyrrnefndum skulda-
skilum verður. Það orkar mjög tví-
mælis að halda því fram að
bankainnistæður breskra spari-
fjáreigenda í Icesave hafi verið
með íslenskri ríkisábyrgð.
Bretar báru sjálfir nokkra
ábyrgð á hvaða fjárglæfrar voru
stundaðir í Lundúnaborg og það
er fráleitt hvort sem litið er á mál-
ið út frá lögfræði eða við-
skiptasiðferði að íslensk alþýða
beri ábyrgð á gjörðum íslenskra
„athafnamanna“ á erlendri grund.
Og að nokkru er málið afleiðing af
marglofuðu fjórfrelsi Evrópulanda
sem Bretar bera ábyrgð á að
minnsta kosti til jafns við Íslend-
inga.
Í annan stað ríkir enn mikil
óvissa um hvert raunverulegt um-
fang Icesave-reikninganna er þeg-
ar teknar hafa verið með eignir
bankakerfisins. Bretar telja sig
reyndar þegar hafa fryst eigur ís-
lenskra banka sem nema innistæð-
unum og síst þarf þá fé skatt-
greiðenda þar til viðbótar. En um
þetta er enn allt mjög á huldu og
upplýsingar misvísandi.
Fullveldi til verndar auðlind-
um
Önnur ástæða þess að Ísland
ætti í lengstu lög að forðast af-
skipti IMF er að með slíkri íhlut-
un stefnum við mjög í hættu yf-
irráðum okkar yfir auðlindum
lands og sjávar. IMF hefur fylgt
hráum og oft illskeyttum frjáls-
hyggjukapítalisma í sínum lausn-
um á vanda þjóða og í litlu skeytt
um félagsleg eða þjóðhagsleg sjón-
armið. Mér er mjög til efs að hann
hafi alltaf verið lánþegum sínum
farsæll. Bankakreppan nú er í
reynd áfellisdómur yfir þeirri hag-
fræði sem sjóðurinn hefur fylgt en
það mun taka langan tíma að leið-
rétta þann kúrs þar innanhúss.
Vel gæti verið að sjóðurinn fyr-
irskipaði einhverskonar útboð
orkuauðlinda sem gæti verið
fyrsta skref útlendinga inn í þau
vé okkar. Slíkt er í fullu samræmi
við algilda alþjóðavæðingu, villta
frjálshyggju og önnur frekar úrelt
og vafasöm sjónarmið. Sjóðurinn
hefði engar skyldur gagnvart al-
menningi í þessu efni og þarf
hvorki að taka tillit til vilja þjóðar
né þings.
Draumsýn ESB-sinna
Af framansögðu er ljóst að það
er okkur hættulegt að ganga á
fund IMF í þeirri kokhreysti að
þar verði engin skilyrði sett. Það
er aftur á móti sjálfsagt að stjórn-
völd ræði málefni landsins við
sjóðinn og þreifi á hvaða aðstoð er
möguleg án skilyrða. Hafi ég skilið
fregnir helgarinnar rétt hefur
fjármálaráðherra setið slíka fundi
vestanhafs.
Á sama tíma hafa forystumenn
Samfylkingarinnar og Samtaka at-
vinnulífsins hamrað á að þegar
eigi að ganga til samninga við
IMF. Slíkt hefur verið einhvers-
konar pólitík til heimabrúks en
vitaskuld hafa allar slíkar glósur
farið hraðþýddar til IMF við borð
fjármálaráðherra. Síðast á mánu-
dagsmorgni lýsti utanrík-
isráðherra því fjálglega yfir að
fyrst ætti að semja við IMF og
síðan ESB!
Athyglisvert að nær allir þær
fræðimenn og stjórnmálaleiðtogar
sem hafa hampað nauðsyn þess að
leita strax til IMF eru þeir sömu
og talað hafa fyrir tafarlausri aðild
Íslands að ESB. Getur verið að til
séu í landinu þeir menn sem eiga
einhverskonar þrot hins íslenska
fullveldis sem draumsýn?
Háskalegt tal
um þjóðargjaldþrot
Bjarni Harðarson
vill að Íslendingar
fari varlega í sam-
skiptum við IMF
» Vel gæti verið að
sjóðurinn fyrirskip-
aði einhverskonar útboð
orkuauðlinda sem gæti
verið fyrsta skref út-
lendinga inn í þau vé
okkar …
Bjarni
Harðarson
Höfundur er þingmaður fyrir Fram-
sóknarflokkinn í Suðurkjördæmi.