Morgunblaðið - 15.10.2008, Síða 30
30 MIÐVIKUDAGUR 15. OKTÓBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Raðauglýsingar 569 1100
Húsnæði í boði
Indælis 70 fm parhús
með trjágarði og einkabílastæði við Hólma-
selstjörn til leigu fyrir 65 ára konu eða eldri.
Aðeins kr 131 þús. á mánuði. Engin fyrirfram-
greiðsla. Reglusemi og skilvísi. Góðir
nágrannar. S. Árni B, 567 7521.
Tilboð/Útboð
ÚTBOÐ
Orkuveita Reykjavíkur • Bæjarhálsi 1 • 110 Reykjavík
Sími 516 6000 • Fax 516 6308
www.or.is/udtbod
Óskað er eftir tilboðum í verkið
Lokahús Fjárborg
Verk þetta skal vinna skv. teikningum og verk-
lýsingu. Verkið felst í byggingu lokahúss, lagningu
raf- og frárennslislagna, innsteypingu tengistykkja
fyrir fyrirhugaða pípulögn og jarðvinnu fyrir lagnir
næst húsinu.
Helstu magntölur:
Gröftur 400 m3
Losun klappar 180 m3
Steypt lokahús (steypa) 38 m3
Verklok eru 15. maí 2009.
Útboðslýsingu er hægt að sækja án endurgjald á
vefsíðu Orkuveitu Reykjavíkur www.or.is - Um
útboð/auglýst útboð frá og með miðvikudaginn 15.
Október. Frá sama tíma er einnig unnt að kaupa þau
hjá þjónustufulltrúum á 1. Hæð í húsi Orkuveitu
Reykjavíkur, Bæjarhálsi 1, 110 Reykjavík
Verð kr. 5000
Tilboð verða opnuð á sama stað í fundarsal á 3.
hæð, vesturhúsi, þriðjudaginn 28. október 2008 kl.
14:00.
OR 2008/56
Tilkynningar
GLITNIR BANK LUXEMBOURG S.A.
(RCS Lux B 106652)
Suspension of payment
On 8 October 2008 the District Court of and in Luxembourg has admitted
Glitnir Bank Luxembourg S.A., established and with registered office situated
in Luxembourg at 534, rue de Neudorf, to the benefit of a procedure of
suspension of payment.
In this context, the Court has appointed as administrator KPMG Advisory
S.à r.l., represented by Mr Eric Collard, with as its mission the control of the
management of Glitnir Bank Luxembourg S.A.'s estate and more particularly
- to draw up a statement reflecting the assets and liabilities situation of the Bank,
- to determine whether a recovery or reorganization of the Bank is possible,
- to draw up as the case may be a recovery plan while taking into account the
ranking of privileges and mortgages,
- to ensure the due publicity of that project,
- to request the agreement of the creditors regarding said project, which will be
considered as duly approved and bind all the creditors if more than half the
creditors representing more than one half of the liabilities grant their approval, and
- subject the approved project for the purpose of homologation to the Court.
The duration of the procedure of suspension of payment is limited to six months.
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á
þeim sjálfum, sem hér segir:
Brjánsstaðir, fnr. 206765, Grímsnes- og Grafningshreppi, þingl. eig.
Golfborgir hf., gerðarbeiðandi Grímsnes- og Grafningshreppur,
þriðjudaginn 21. október 2008 kl. 10:40.
Djúpahraun 14, fnr. 229-7530, Grímsnes- og Grafningshreppi, þingl.
eig. Lára Daníelsdóttir, gerðarbeiðendur Grímsnes- og Grafnings-
hreppur og Sjóvá-Almennar tryggingar hf., þriðjudaginn 21. október
2008 kl. 10:20.
Engjagil 5, fnr. 230-6090, þingl. eig. Unnar Vilhelm Karlsson og
Nesvíkureyri ehf., gerðarbeiðendur Byggingafélagið Geysir ehf.,
Sýslumaðurinn á Selfossi og Vátryggingafélag Íslands hf.,
þriðjudaginn 21. október 2008 kl. 13:15.
Engjagil 6, fnr. 230-6091, Bláskógabyggð, þingl. eig. Collect ehf.,
gerðarbeiðendur Byggingafélagið Geysir ehf. og Sýslumaðurinn á
Selfossi, þriðjudaginn 21. október 2008 kl. 13:20.
Gilvegur 1, fnr. 199211, Grímsnes- og Grafningshreppi, þingl. eig.
EH-hús ehf., gerðarbeiðendur Grímsnes- og Grafningshreppur og Ísó
ehf., þriðjudaginn 21. október 2008 kl. 10:50.
Gilvegur 9, fnr. 199219, Grímsnes- og Grafningshreppi, þingl. eig.
EH-hús ehf., gerðarbeiðandi Byko hf., þriðjudaginn 21. október 2008
kl. 11:00.
Lækjarbrekka 29, fnr. 229-4104, Grímsnes- og Grafningshreppi, þingl.
eig. Fjárfestingarfélagið Tex ehf., gerðarbeiðendur BYR-sparisjóður,
útibú Kópavogi, Glitnir banki hf., Tollstjóraembættið og
Vátryggingafélag Íslands hf., þriðjudaginn 21. október 2008 kl. 09:45.
Lækjarbrekka 33, fnr. 229-5417, Grímsnes- og Grafningshreppi, þingl.
eig. Fjárfestingarfélagið Tex ehf., gerðarbeiðendur BYR-sparisjóður,
útibú Kópavogi, Glitnir banki hf., Tollstjóraembættið og
Vátryggingafélag Íslands hf., þriðjudaginn 21. október 2008 kl. 10:00.
Snorrastaðir lóð 5, fnr. 226-1505, Bláskógabyggð, þingl. eig. Sigurður
Jóhannsson, gerðarbeiðendur Bláskógabyggð og nb.is-sparisjóður
hf., þriðjudaginn 21. október 2008 kl. 11:40.
Vesturbyggð 6 Lyngbre, fnr. 220-5565, Bláskógabyggð, þingl. eig.
Alice Petersen, gerðarbeiðandi Bláskógabyggð, þriðjudaginn 21.
október 2008 kl. 14:00.
Víðibrekka 30, fnr. 201194, Grímsnes- og Grafningshreppi, þingl. eig.
Hildur Björk Pálsdóttir og Júlíus Arnar Birgisson, gerðarbeiðandi
Landmenn ehf., þriðjudaginn 21. október 2008 kl. 09:30.
Sýslumaðurinn á Selfossi,
14. október 2008.
Ólafur Helgi Kjartansson.
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á
þeim sjálfum, sem hér segir:
Austurmýri 3, fnr. 226-6029, Sveitafélagið Árborg, þingl. eig. Vestan-
vindur ehf., gerðarbeiðendur Elektrus ehf. og Landsbanki Íslands hf.,
aðalstöðv., mánudaginn 20. október 2008 kl. 09:45.
Birkihólar 7, fnr. 229-0397, Sveitarfélaginu Árborg, ehl. gþ., þingl. eig.
Jóhann Kristinn Jóhannsson, gerðarbeiðendur Byko hf. og
Vátryggingafélag Íslands hf., mánudaginn 20. október 2008 kl. 10:20.
Eyravegur 31, fnr. 218-5752, Svf. Árborg, þingl. eig. Helgarás ehf.,
gerðarbeiðendur Fasteignasala Reykjavíkur ehf. og Landsbanki
Íslands hf., aðalstöðv., mánudaginn 20. október 2008 kl. 09:00.
Fífumói 13-15, fnr. 226-9550, Sveitarfélaginu Árborg, þingl. eig. Einar
Þór Stefánsson, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður, Sparisjóðurinn á
Suðurlandi og Sveitarfélagið Árborg, mánudaginn 20. október 2008
kl. 09:15.
Fossvegur 8, fnr. 227-3396, Svf. Árborg, þingl. eig. Hanna Sigríður
Benediktsdóttir, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, mánudaginn 20.
október 2008 kl. 09:30.
Gljúfurárholt, fnr. 171707, Ölfus, þingl. eig. Gljúfurbyggð ehf.,
gerðarbeiðendur Sveitarfélagið Ölfus og Vátryggingafélag Íslands hf.,
mánudaginn 20. október 2008 kl. 13:10.
Grundartjörn 5A, fnr. 221-6573, Sveitafél. Árborg, þingl. eig. Hrafn-
hildur Ingibergsdóttir, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður, Landsbanki
Íslands hf., aðalstöðv. og Sveitarfélagið Árborg, mánudaginn 20.
október 2008 kl. 10:50.
Heiðmörk 65, fnr. 221-0498, Hveragerði, þingl. eig. Steina Rósa
Björgvinsdóttir og Einar Björnsson, gerðarbeiðendur Hvera-
gerðisbær, Landsbanki Íslands hf., aðalstöðv. og Tryggingamiðstöðin
hf., mánudaginn 20. október 2008 kl. 13:40.
Kálfhólar 1, fnr. 228-1624, Svf. Árborg, þingl. eig. Steyputak ehf.,
gerðarbeiðendur BYR sparisjóður, höfðust., farstýr., Frjálsi
fjárfestingarbankinn hf. og Vátryggingafélag Íslands hf., mánudaginn
20. október 2008 kl. 10:35.
Laufskógar 8, fnr. 221-0670, Hveragerði, þingl. eig. HeimaDrangur
ehf., gerðarbeiðandi Frjálsi fjárfestingarbankinn hf., mánudaginn 20.
október 2008 kl. 13:25.
Minni-Mástunga lóð 1-5, fnr. 227-0647, Skeiða- og Gnúpverjahreppi,
þingl. eig. Hótelfélagið Skyggnir ehf., gerðarbeiðendur Hitaveitufélag
Gnúpverja ehf., Sjóvá-Almennar tryggingar hf. og Skeiða- og
Gnúpverjahreppur, mánudaginn 20. október 2008 kl. 14:30.
Nýibær lóð 193693, fnr. 220-0602, Svf. Árborg, þingl. eig. Halldóra
Kristín Gunnarsdóttir, gerðarbeiðandi Tollstjóraembættið,
mánudaginn 20. október 2008 kl. 11:15.
Svanabyggð 13, fnr. 220-3986, Hrunamannahrepp, þingl. eig. Brynjar
Jóhannesson, gerðarbeiðendur Glitnir banki hf. og Johan Rönning
hf., mánudaginn 20. október 2008 kl. 15:10.
Vesturgljúfur 2, fnr. 203167, Ölfus, þingl. eig. RG HÚS ehf.,
gerðarbeiðendur Landsbanki Íslands hf., aðalstöðv. og Sveitarfélagið
Ölfus, mánudaginn 20. október 2008 kl. 13:00.
Sýslumaðurinn á Selfossi,
14. október 2008.
Ólafur Helgi Kjartansson.
Félagslíf
Sálarrannsóknarfélag
Íslands,
stofnað 1918,
sími 551 8130,
Garðastræti 8, Reykjavík.
Skúli Lórenzson miðill verður
með einkatíma 16. október nk. í
húsakynnum Sálarrannsóknar-
félags Íslands að Garðastræti 8.
Pantanir á skrifstofu félagsins í
síma 551-8130.
I.O.O.F. 9 189101581/2FI
I.O.O.F. 7. 189101571/2 Fl
I.O.O.F. 18 18910158 Fl.
Hörgshlíð 12.
Boðun fagnaðarerindisins.
Bænastund í kvöld kl. 20.00.
HELGAFELL 6008101519 IV/V
GLITNIR 6008101519 I
Nauðungarsala
INDVERSKI heimsmeistarinn
Wisvanathan Anand hóf í gær tit-
ilvörn sína gegn Rússanum Vladim-
ir Kramnik. Skákin var fremur
bragðdauf og lauk með jafntefli eft-
ir 32 leiki. Báðir er þrautreyndir í
einvígjum en svo virðist sem Kram-
nik ætli að beita þeim vopnum sem
gáfust honum vel í einvíginu við
Kasparov í London árið 2000, að
sneiða hjá óljósum flækjum og
stofna til mikilla uppskipta snemma
tafls. Þetta er ekki beint fjörleg af-
staða en vonandi tekst Anand, sem
þrífst ágætlega í flóknum stöðum,
að hleypa lífi í skákirnar. Kramnik
hefur afburðagóða tækni og ekki er
veikleika að finna í neinum þætti
skákarinnar en hernaðarstrategía
hans hefur trúlega komið fram
skákinni í gær. Hann valdi upp-
skiptaafbrigðið gegn slavnesku
vörninni í gær og fljótlega kom upp
staða með mislitum biskupum þar
sem Anand var ekki í neinum telj-
andi vandræðum með að halda
jöfnu þó hann yrði að láta peð af
hendi snemma tafls.
Wisvanathan Anand varð heims-
meistari í fyrra eftir sigur á átta
manna móti með tvöfaldri umferð
sem fram fór í Mexíkó, Kramnik
varð í þriðja sæti en þátttaka hans
sætti nokkrum tíðindum. Skömmu
áður en mótið hófst kom í ljós að
FIDE hafði gert baksamning við
hann sem tryggði að hvernig sem
færi í Mexíkó fengi hann að tefla
einvígi um heimsmeistaratitilinn að
ári.
Einvígið fer fram í Bonn í Þýska-
landi og verða tefldar 12 skákir.
Verði jafnt tefla þeir fjórar at-
skákir og ef ekki tekst að útkljá
málin tekur við bráðabani. Þetta er
sama fyrirkomulag og í einvígi
Kramniks og Topalov í Elista fyrir
tveim árum. Þó réttur Kramniks,
sem situr nú um stundir í 6. sæti
heimslistans, til að heyja þetta ein-
vígi sé æði vafasamur í hugum
margra, þá er hægt að vera sam-
mála honum um eitt atriði: að
keppni um heimsmeistaratitilinn í
skák eigi að útkljá með einvígi.
Fyrir þetta einvígi hafa þeir teflt
51 kappskák og hefur Kramnik
unnið sex sinnum, Anand fjórum
sinnum og 41 skák hefur lokið með
jafntefli.
Anand er 38 ára gamall og geng-
ur stundum undir nafninu „tígurinn
frá Madras. Hann þykir eilítið sig-
urstranglegri en Kramnik, sem er
33 ára og lét þess getið i fyrra að
hann hefði einungis „lánað“ Anand
heimsmeistaratitil í eitt ár.
1. einvígisskák:
Vladimir Kramnik – Wisvanat-
han Anand
Slavnesk vörn
1. d4 d5 2. c4 c6 3. Rc3 Rf6 4.
cxd5 cxd5 5. Bf4 Rc6 6. e3 Bf5 7.
Rf3 e6 8. Db3
Hvorki 8. Bb5 sem er algengasti
leikurinn í þessari stöðu né 8. Re5
gefa mikla möguleika.
8. … Bb4 9. Bb5 O-O 10. Bxc6
Bxc3+ 11. Dxc3 Hc8 12. Re5 Rg4
13. Rxg4 Bxg4 14. Db4 Hxc6 (Sjá
stöðumynd) Frekar en að sitja uppi
með veikingu eftir c-línunni lætur
Anand peð af hendi. Bætur hans
felast í því að hann ræður yfir einu
opnu línunni.
15. Dxb7 Dc8 16. Dxc8 Hfxc8 17.
O-O 15 18. f3 Bf5 19. Hfe1 Bg6 20.
b3 f6 21. e4 dxe4 22. fxe4 Hd8 23.
Had1 Hc2 24. e5
Kramnik lék þessu eftir langa
umhugsun, hugmyndin er að fá e-
peðið í skiptum fyrir a-peðið.
24. … fxe5 25. Bxe5
Eða 25. Hxe5 Hxa2 26. Hxe6 Bc2
og b3-peðið fellur.
25. … Hxa2 26. Ha1 Hxa1 27.
Hxa1 Hd5 28. Hc1 Hd7 29. Hc5
Ha7 30. Hc7 Hxc7 31. Bxc7 Bc2
32. Bxa5 Bxb3
– og hér sömdu keppendur um
jafntefli. Önnur skák einvígisins
verður tefld í dag og þá hefur An-
and hvítt.
Dagskráin gerir ráð fyrir að
tefldar verða tvær skákir í beit, síð-
an kemur frídagur og þá aftur tvær
skákir og svo koll af kolli. Fyrsta
skákin var tefld í gær, sú næsta
verður í dag, frídagur á morgun, þá
tvær skákir, frídagur o.s.frv. Síð-
asti mögulegi keppnisdagur er 2.
nóvember en þá eru aukaskákirnar
á dagskrá ef með þarf.
Tímafyrirkomulag heimsmeist-
araeinvígis Anand og Kramnik er
þannig að skákmennirnir hafa 120
mínútur hvor á fyrstu 40 leikina,
síðan 60 mínútur á næstu 20 leiki.
Þá fyrst kemur „Fischer-klukkan“
til skjalanna því keppendur fá 15
mínútur hvor til að ljúka skákinni
að viðbættum 30 sekúndum fyrir
hvern leik.
Hægt er að fylgjast með skák-
unum í beinni útsendinu t.d. á ICC-
vefnum en vefur framkvæmdaraðila
einvígisins heitir FoidosChess.
helol@simnet.is
Titilvörn indverska heimsmeistarans
SKÁK
Bonn, Þýskalandi
14. október – 2. nóvember
Helgi Ólafsson
Heimsmeistaraeinvígið