Morgunblaðið - 15.10.2008, Blaðsíða 36
36 MIÐVIKUDAGUR 15. OKTÓBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ
MENNING
Eftir Birgi Örn Steinarsson
biggi@mbl.is
„Hér áður heyrði ég aldrei neitt um Ísland í fréttum en
núna byrja allir fréttatímar á fréttum héðan,“ segir Haf-
dís Huld tónlistarkona sem búsett er í London en dvelur
hér á landi yfir Airwaves-hátíðina til þess að kynna nýút-
komna útgáfu sína af laginu „Stop“ sem Sam Brown
gerði vinsælt á níunda áratugnum.
Hún segir að þrátt fyrir fréttaflutning í breskum blöð-
um síðustu daga finni hún ekki fyrir aukinni óvild í garð
Íslendinga. „Í upphafi var rosalega gaman að sjá frétta-
menn við Tjörnina í sjónvarpinu en svo fór mann
að langa til að heyra jákvæðar fréttir frá Íslandi.
Fyrst voru Bretarnir að kenna Íslendingum um ástandið, en núna
eru blaðamenn jafnvel að velta því fyrir sér hvort aðgerðir Breta
hafi ekki verið frekar ómannúðlegar gagnvart okkur.“
Hafdís lætur ástandið lítið á sig fá og hyggst hljóðrita aðra
breiðskífu sína hérlendis, enda aldrei verið hagstæðara að
kaupa hljóðverstíma hérlendis með enskum pundum. Lagið
„Stop“ verður þó hvergi að finna á plötunni. „Við ákváðum að
gera þetta lag eftir viðbrögðin sem við fengum við Mercedes-
auglýsingu sem ég lék í. Þar var lagið ósungið og ég hef fengið
fjölda fyrirspurna um hvar sé hægt að nálgast sungna útgáfu
sem var ekki til þannig að við bara ákváðum að búa hana til,“
segir Hafdís.
Stop kemur út á tónlist.is í næstu viku og fær svo al-
þjóðlega útgáfu í gegnum iTunes.
Miðasala
S. 545 2500
www.sinfonia.is
■ 16.-18. október
Sibeliushringurinn
Sinfóníuhljómsveit Íslands leikur allar sinfóníur Sibeliusar og fiðlukonsertinn að
auki á þrennum tónleikum. Einstakt tækifæri til að heyra allar sinfóníur Sibeliusar í
einum rykk og fá þannig heildarmynd af einum fremsta sinfóníuhöfundi allra tíma.
Stjórnandi: Petri Sakari
Einleikari: Sigrún Eðvaldsdóttir
16.-18. október
Þjóðinni boðið
Sinfóníuhljómsveitin hefur ákveðið að bjóða Íslendingum á tónleika sína á
föstudagskvöld 17. október og laugardag 18. október.
Fimmtudaginn 16. október kl. 19.30
Sinfónía nr. 1
Fiðlukonsert
Sinfónía nr. 3
Föstudaginn 17. október kl. 19.30 – þjóðinni boðið
Sinfónía nr. 2
Sinfónía nr. 4
Laugardaginn 18. október kl. 17.00 – þjóðinni boðið
Sinfónía nr. 5
Sinfónía nr. 6
Sinfónía nr. 7
STOÐIR ERU AÐALSTYRKTARAÐILI
SINFÓNÍUHLJÓMSVEITAR ÍSLANDS
Eins og fram kom í frétt DV í
gær hefur öllum starfsmönnum
Vatikansins verið sagt upp störfum
og spyrja menn sig í framhaldinu
hvað verði þá um tónlistar- og lífs-
stílstímaritið Monitor sem auglýs-
ingaskrifstofan hefur gefið út með
góðum árangri í rúmt ár.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins lítur þrettánda tölublaðið
Monitor dagsins ljós í lok vikunnar
og eru engin áform um að leggja
blaðið niður þrátt fyrir uppsagnir
hjá Vatikaninu. Starfsmenn stof-
unnar hafi þriggja mánaða upp-
sagnarfrest og mun það vera hugur
allra þar innanhús að halda blaðinu
gangandi út þann tíma. Hvað verð-
ur um blaðið eftir áramót er ekki
vitað né heldur hvaða áhrif upp-
sagnirnar eiga eftir að hafa á fram-
leiðsluna það sem eftir er ársins.
Forsíðu nýja tölublaðsins prýðir
leikkonan Aníta Briem.
Fólk
Útgáfu nýrrar hljómplötu Ladda
hefur verið frestað fram á næsta ár.
Ástæðan ku vera sú að platan var
ekki komin nægilega langt í fram-
leiðslu en heimildir Morgunblaðsins
herma að sex af þeim 36 titlum sem
Sena ráðgerði að senda frá sér um
þessi jól hafi verið frestað um
óákveðinn tíma. Eru þar á meðal
safnplötur Tvíhöfða, Páls Rósin-
krans og Savanna tríósins. Mun það
hafa verið mat fyrirtækisins að
glapræði væri, í ljósi slæms ástands
krónunnar og stopulla gjaldeyr-
isviðskipta við útlönd, að gera ekki
einhverjar breytingar á áætluninni
fyrir jólamarkaðinn. Eins og fram
kom í Morgunblaðinu í síðustu viku
hafa önnur útgáfufyrirtæki lent í
erfiðleikum með að innleysa plötur
úr tolli vegna ónógs gjaldeyris í
landinu. Aðdáendur Ladda verða
því að bíða um sinn eftir nýju efni
frá grínaranum.
Laddi bíður fram á
næsta ár
Eftir Ingveldi Geirsdóttur
ingveldur@mbl.is
„STUNDUM hittir maður á rétta
taug, það er með ólíkindum. Því miður
hafði ég rétt fyrir mér.“ Þessi orð
mælir rithöfundurinn Stefán Máni um
efni nýrrar bókar sinnar, Ódáða-
hraun, sem kemur út í dag. Sumir
hafa sagt Stefán Mána spá fyrir um
núverandi efnahagsástand í bókinni.
„Ég samdi sjálfur káputextann fyr-
ir tveimur mánuðum og þessi setning:
„Ódáðahraun er grafskrift íslenska
hlutabréfaævintýrisins“ er hugsunin á
bak við bókina en ég bjóst ekki við að
þetta yrði svona bókstaflegt.“
Sami hanaslagurinn
Í Ódáðahrauni segir frá undir-
heimakónginum Óðni R. Elsusyni sem
kemst inn í heim viðskipta og hluta-
bréfakaupa og er fyrr en varir kominn
í stríð við helstu auðjöfra landsins.
„Hugmyndin að bókinni kviknaði
fyrir tveimur árum, þá var ég kominn
með slæma tilfinningu fyrir útrásar-
ævintýrinu. Mér fór að finnast að það
væri enginn munur á viðskiptaheim-
inum og undirheiminum. Báðir heim-
ar snúast voða mikið um ímynd og yf-
irlýsingar, sami hanaslagurinn. Þá
kviknaði þessi hugmynd, að láta al-
vöru glæpamann fara að kaupa hluta-
bréf og sjá hvernig hann myndi spjara
sig með sínar aðferðir og sín meðul í
viðskiptaheiminum. Ég talaði við
menn sem þekkja vel til í viðskiptum
og þá rak ég mig strax á það að við-
skiptaheimurinn er líka undirheimur.
Dálítið eins og með ísjakann, við sjá-
um ekki nema einn tíunda hans, restin
er neðansjávar.“
Stefán vill ekki taka svo djúpt í ár-
inni að glæpamenn stjórni Íslandi.
„Það var hagfræðingur sem sagði:
„Behind every successful business
there is a great crime.“ Þetta er trú-
lega rétt en við erum að tala um
glæpamenn á gráu svæði.“
Notar skuggamyndir
Spurður hvort hann sæki fyrir-
myndir að persónum í Ódáðahrauni í
íslenskt viðskiptalíf segir Stefán að
hann noti klárlega skuggamyndir en
stundum séu líkindin tilviljun.
Stefán Máni treysti eigin innsæi og
fór ekki illa út úr bankakreppunni
eins og svo margur. „Ég átti fáein
hlutabréf og seldi þau öll í vor. Ég fæ
oft einhverja tilfinningu, t.d. hef ég
oftar en einu sinni sagt upp vinnu í
fyrirtæki sem fór svo á hausinn stuttu
seinna,“ segir Stefán sem vill nú ekki
vera að blása upp þessa spádómsgáfu
sína. „Það voru nú margir mér merk-
ari menn búnir að senda frá sér við-
varanir, þær raddir heyrðust ekki.
Þetta lá í loftinu og ég var ekki sá eini
sem fann fyrir því. Það var komin
feigð í drauminn.“
Grafskrift góðærisins
Rithöfundurinn Stefán Máni spáir fyrir um bankakreppuna í nýrri bók sinni,
Ódáðahraun „Það var komin feigð í drauminn“ Seldi öll hlutabréfin sín í vor
Morgunblaðið/RAX
Nostradamus Stefán Máni fylgdi innsæinu og seldi hlutabréfin sín í vor.
ÞRÁTT fyrir að vera aðeins þriggja
mánaða gamalt birtist tríóið Dyna-
mo Fog eins og fullmótað í íslensku
tónlistarlífi með splunkunýju mynd-
bandi við lagið „Let́s Rock and
Roll“. Stíll sveitarinnar, alveg niður í
klæðnað, virðist útpældur og lagið
gefur til kynna að sveitin hafi til-
einkað sér fjörugar og grípandi
rokksmíðar samkvæmt nýja skól-
anum.
Sveitin er skipuð þeim Jóni Þór
Ólafssyni á gítar (áður úr Lödu
Sport), Axel Árnasyni (áður úr
200.000 naglbítum) og trommuleik-
aranum Arnari Inga Viðarssyni
(Future Future). Myndbandið sem
sýnir, með gógópíum og öllu tilheyr-
andi, sveitina leika lagið fyrir fullu
húsi ungmenna er gert af Aðalstein
Hallgrímssyni.
„Ég og Jón Þór erum búnir að
spila saman í einhvern tíma og fara í
gegnum nokkra bassaleikara en það
var ekki fyrr en Axel kom inn sem
hlutir fóru á flug,“ segir Arnar. „Við
sömdum þetta lag í hljóðverinu og
tókum strax upp. Svo erum við búnir
að vera æfa á fullu og endurútsetja
þau lög sem við eigum. Við erum al-
veg til í slaginn.“ biggi@mbl.is
Nýtt,
ferskt og
útpælt
Dynamo Fog Varð til á mettíma en virðist fullmótuð í nýju myndbandi.
Dynamo Fog spilar á Organ á Ice-
land Airwaves á fimmtudag.
„Enda ertu ekki glæpamaður, er
það?“ spyr Óðinn og blæs reyk
upp í loftið. „Þú ert bara í bis-
ness, ekki satt? Fínn kall í fínu
húsi og á fínum bíl. Kona, krakki
og allur pakkinn, ha! Aldrei setið
inni og allt það! Og svo kemur
krimminn hann Óðinn í heim-
sókn og skemmir glansmyndina!
Eins og djöfullinn í Disneylandi!“
„Hvað viltu?“ spyr Tómas og
ræskir sig. Hann losar um bind-
ishnútinn og strýkur svitadropa
af öðru gagnauganu.
Orðrétt
Hvað verður þá um
Monitor?
Langar til að hljóðrita aðra plötu sína á Íslandi
Sjáið myndskeið af Hafdísi syngja Stop á myspace.com/
hafdishuld
Morgunblaðið/Kristinn
Hafdís Huld Er búin að semja 30 ný lög og
ætlar að velja þau bestu á næstu plötu.