Morgunblaðið - 15.10.2008, Page 40
40 MIÐVIKUDAGUR 15. OKTÓBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ
/ KRINGLUNNI/ ÁLFABAKKA
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, KEFLAVÍK, AKUREYRI OG SELFOSSI
BESTA MYNDIN - TEDDY AWARDS BERLINALE FILM FESTIVAL
SÝND Í ÁLFABAKKA OG KRINGLUNNI
GEIMAPARNIR m/ísl. tali kl. 6 LEYFÐ
JOURNEY TO ... kl. 5:50 3D LEYFÐ 3D-DIGITAL
TROPIC THUNDER kl. 8 - 10:20 B.i. 16 ára
TROPIC THUNDER kl. 5:50 B.i. 16 ára LÚXUS VIP
SVEITABRÚÐKAUP kl. 5:50 LEYFÐ
NIGHTS IN RODANTHE kl. 5:50 - 8 - 10:10 LEYFÐ
NIGHTS IN RODANTHE kl. 8 - 10:10 LÚXUS VIP
QUEEN RAQUELA kl. 8 - 10:10 B.i. 12 ára
PATHOLOGY kl. 8 - 10:10 B.i. 16 ára
WILD CHILD kl. 5:50 - 8 - 10:10 LEYFÐ
SÝND Í ÁLFABAKKA VIPSALURINNER BARA LÚXUSER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKASÝND Í ÁLFABAKKA
FRÁ HÖFUNDI THE NOTEBOOK
KEMUR NIGHTS IN RODANTHE
VIPSALURINNER BARA LÚXUS
ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA
RICHARD GERE
ÁSAMT DIANE LANE
FARA Á KOSTUM
Í ÞESSARI FALLEGU
ÁSTARSÖGU.
,,ÁHRIFARÍK KVIKMYND”
- LA TIMES
,,HEILLANDI OG
DÓMLAUS FRÁSÖGN”
- HOLLYWOOD REPORTER
ÍSLENSK MYND EFTIR
ÓLAF JÓHANNESSON
SEM ERLENDIR
GAGNRÝNENDUR
HALDA VART
VATNI YFIR!
SÝND Í KEFLAVÍK OG SELFOSSISÝND Í KEFLAVÍK OG SEL OSSI
„HUGLJÚF SKEMMTUN”
- HS, MBL
„MYND SEM EKKI ER
HÆGT AÐ GLEYMA SVO
AUÐVELDLEGA”
- S.M.E., MANNLÍF
FRÁ MANNÖPUNUM SEM FÆRÐU OKKUR SHREK
ÍSLENSKT TAL
SÝND Í ÁLFABAKKA
NIGHTS IN RODANTHE kl. 8:10 - 10:20 LEYFÐ
QUEEN RAQUELA kl. 6D - 8D - 10D B.i. 12 ára DIGITAL
HAPPY GO LUCKY kl. 5:50 B.i. 12 ára
DEATH RACE kl. 10:20 B.i. 16 ára
JOURNEY TO THE C... kl. 63D LEYFÐ 3D - DIGITAL
Iceland Airwaves
Eftir Árna Matthíasson
arnim@mbl.is
Á FYRSTA Airwaves-kvöldi gefst
einkar gott færi á að sjá gott sýn-
ishorn af því sem ferskast er á seyði
í íslenskri tónlist nú um stundir.
20:00 Hressó Klive sendi frá sér
fína breiðskífu fyrr á árinu og rétt
að byrja kvöldið á því að hlýða á líf-
ræna raftónlist.
20:15 Organ Með bestu hljóm-
sveitum síðustu Airwaves-hátíðar
var proggsveitin magnaða Perla.
20:45 Hressó Kvöldið byrjar rólega
á Hressó en stuðið eykst með Shog-
un, sem sendi frá sér magnaða
plötu fyrir stuttu. Grimmd-
arkeyrsla í þrælflóknu og -flottu
rokki.
22:15 NASA Á undanförnum Airwa-
ves-hátíðum hefur rokksveitin We
Made God unnið sig upp í að vera á
góðum tíma í besta húsinu.
23:00 Hressó Ein vinsælasta hljóm-
sveit landsins annó 2006 tók sér frí
fyrir einhverjar sakir en snýr nú
aftur með nýja skífu í farteskinu.
Nær Jeff Who? fyrri hæðum?
0:00 Organ For a Minor Reflection
undirbýr sig af kappi fyrir spila-
mennsku víða í Evrópu með Sigur
Rós. Við fáum forskot á aðra Evr-
ópubúa.
19:30 Tunglið Þeir sem ekki nenna
að vera á þeysingi geta unað við sitt
á skemmtikvöldi Kima sem hefst
19.30, en fram koma Hellvar, Morð-
ingjarnir, Borko, Benni Hemm
Hemm, Hjaltalín, Retro Stefson og
Reykjavik! en tvær síðastnefndu
hafa nýlokið við plötur.
Ekki missa af
Íslenskt er aðal
Ljósmynd/Björg Sveinsdóttir
Á uppleið We Made God í svimandi sveiflu á Airwaves í fyrra.
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
SÍGANDI lukka er að sönnu best,
alltént í tilfelli skosku rokksveitar-
innar Biffy Clyro, en hún er fyrsta
erlenda sveitin sem kemur fram á
Airwaves í ár. Hún er reyndar sú
eina þeirrar gerðar í kvöld en Clyro-
liðar leggja sitt af mörkum til þessa
umfangsmesta tónlistarviðburðar
ársins skömmu fyrir miðnætti á
NASA. Það er breska þungarokks-
ritið Kerrang! sem verður þar með
sérstakt kvöld í samstarfi við út-
varpsstöðina X-ið 977, og er þetta
fimmta árið í röð sem slíkt kvöld er
haldið.
Glamrað
Sígandi lukka sagði hann, en sveit-
in varð til fyrir þrettán árum og kall-
aðist þá Screwfish, nafn sem er ekki
beint líklegt til vinsælda. Fyrsta
platan undir Biffy-nafninu kom hins
vegar ekki út fyrr en 2002 en flæði
útgáfna hefur verið mjög jafnt síðan.
Fjórða og nýjasta platan, Puzzle,
kom út í fyrra á stóru merki, múraði
sveitina inn vinsældalega og sölutöl-
ur tóku (loksins) ærlegan kipp.
Simon Neil, sem sér um gítarleik
og söng í sveitinni, hafnar því að
sveitin sé orðin of stór fyrir hátíð
eins og Airwaves, en síðustu misseri
hefur sveitin verið að opna fyrir risa
eins og Muse, The Who og Queens of
the Stone Age.
„Að mínu viti snýst þetta um að
spila eins mikið og oft og hægt er. Og
„minni“ hátíðir eru þar sérstaklega
mikilvægar.“
Neil og félagar eru sem stendur
heima við í Skotlandi að taka upp
næstu plötu.
„Við erum að rúlla inn „demóum“,“
segir Neil. „Við tökum plötuna síðan
almennilega upp í janúar.“
Neil segist ekki vera einn af þeim
sem eiga gott með að semja á tón-
leikaferðalagi.
„Þar fer öll einbeitingin í að standa
sig almennilega á sviðinu. Ég get
ekki sest niður eftir tónleika og
glamrað á gítarinn, þetta eru tveir
mjög svo aðskildir hlutir. Ég verð að
komast úr þeirri rútínu til að geta
samið eitthvað af viti.“
Glaður gæfi ég allt …
Neil hlær við þegar hann er spurð-
ur að því hvernig rokk og ról-
lífsstíllinn passi við þá félaga.
„Við höfum ekki farið svo illa út úr
honum! Við erum líka orðnir sæmi-
lega sjóaðir og vitum hvenær það er
rétt að sletta úr klaufunum og hve-
nær ekki.“
Neil segir þá félaga að mörgu leyti
heppna, þeir séu búnir að vera sam-
an í þessu formi í tíu ár og samstarfið
gangi nokkurn veginn snurðulaust
fyrir sig. En hvernig líst honum á
frægðina?
„Það er erfitt að segja, síðasta
plata hefur vissulega valdið því að
fleiri þekkja okkur. En … eins klisju-
kennt og það kann að hljóma … þá
snýst þetta fyrst og síðast um það að
búa til tónlist, tónlist sem gleður okk-
ur fyrst og fremst. Og ef aðrir tengja
við hana líka þá er það auðvitað frá-
bært.“
Erlendur gestur: Biffy Clyro
Lífið er púsluspil
Innmúraðir Biffy Clyro hefur aldrei verið vinsælli en nú.
Biffy Clyro treður upp á NASA í
kvöld kl. 23.45.
,.*4 E4#.) "&''# $#
$
56
( / '
718
56
9:#;1'<#=0
'">
?)
( & '
0 /#:
'
.
:#@ A
B
'
381$
C #;)
@#."#D "
E&'
#F8 $
01#B1 #=0
'">
@ #?'6
G .
.& '
H!#()')
I
(28#3
F ##.' #78
'
J)
. '&''
0
0''#J #J
J
'
7
#(
'
71)I
Biffy Clyro koma frá Ayrshire í
Skotlandi, frá smábæjunum Ayr
og Kilmarnock nánar tiltekið.
Simon Neil, höfuðpaur sveit-
arinnar, lýsir því að hann geti
heyrt í beljunum baula þar sem
þeir séu að taka upp næstu
plötu sína.
„Það hefur allt að segja að
geta komist „heim“ í sveitasæl-
una,“ segir hann og kímir.
„Hér getur maður einbeitt sér
að því að semja og komið niður
eftir flandur um heimsins höf.
Þetta kemur manni í jarð-
samband enda er öllum sama
um tónlist hérna!“
Sveitavargar