Morgunblaðið - 15.10.2008, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. OKTÓBER 2008 41
/ SELFOSSI/ KEFLAVÍK/ AKUREYRI
EMMA ROBERTS ER NÝJA STELPAN,
Í NÝJA SKÓLANUM ÞAR SEM NÝJU
REGLURNAR ERU TIL VANDRÆÐA!
SÝND Í KRINGLUNNI SÝND Á AKUREYRI
SÝND Í ÁLFABAKKA
FRAMTÍÐAR
SPENNUTRYLLIR Í
ANDA BLADE RUNNER
SÝND Á AKUREYRI
-TOMMI - KVIKMYNDIR.IS
S.V. - MORGUNBLAÐIÐ
SÝND Á SELFOSSI
ATH. STRANGLEGA
BÖNNUÐ INNAN 16 ÁRA.
EINHVER HROTTALEGASTA
SPENNUMYND SÍÐARI ÁRA,
Í ANDA HINNA MÖGNUÐU
FLATLINERS
SÝND Í ÁLFABAKKA OG KEFLAVÍK
JÁKVÆÐASTA MYND ÁRSINS
MYND SEM ÞÚ VERÐUR AÐ SJÁ
SÝND Í ÁLFABAKKA OG KRINGLUNNI SÝND Í KRINGLUNNI
-BBC
-HJ.,MBL
RIGHTEOUS KILL kl. 8 B.i. 16 ára
QUEEN RAQUELA kl. 8 B.i. 12 ára
REYKJAVÍK ROTTERDAM kl. 8 - 10:10 B.i. 14 ára
QUEEN RAQUELA kl. 8 B.i. 12 ára
PATHOLOGY kl. 10 B.i. 16 ára
REYKJAVÍK ROTTERDAM kl. 8 - 10:10 B.i. 14 ára
CHARLIE BARTLETT kl. 8 B.i. 12 ára
QUEEN RAQUELA kl. 10:10 B.i. 12 ára
Á mánudag fór fram undirbúningsfundur með þeim listamönnum og
hljómsveitum sem fram koma á Iceland Airwaves. Farið var yfir tækni- og
tækjamál með sviðsstjórum, hljóðprufutímum var úthlutað og síðast en
ekki síst var Airwaves-pössum úthlutað. Eins og búast mátti við urðu ein-
hverjir fúlir út í „sparsemi“ skipuleggjenda á pössunum og fannst sumum
fúlt að enginn gestalisti væri í boði fyrir nánustu vini og fjölskyldur.
Fastir liðir eins og venjulega
Til hliðar má lesa um Klive og
Agent Fresco í svokölluðum Sveins-
prófsdálki, en næstu daga mun
Morgunblaðið kynna sérstaklega
listamenn sem eru að koma fram í
fyrsta skipti á Airwaveshátíðinni.
Það er óþarfi að fjölyrða um mik-
ilvægi hátíðarinnar fyrir unga og
efnilega tónlistarmenn og margt
gott hefur komið út úr tónleikum
ástríðufullra tónlistarmanna í tíu
ára sögu hátíðarinnar, þar sem allt
er að vinna en engu að tapa.
Fyrstu
Airwaves-skrefin
Norðlenska útgáfufyrirtækið
kimi records er sjóðandi heitt nú
sem endranær og dælir óhikað út
framsækinni tónlist þrátt fyrir
agalegt árferði. Reykjavík! FM
Belfast og Retro Stefson veita
plötum sínum í gegnum kima á
næstu vikum og útgáfan leggur
undir sig Tunglið í kvöld þar sem
sveitir sem tengsl við hana hafa
troða upp; Hellvar, Morðingjarnir,
Borkó, Benni Hemm Hemm, Retro
Stefson, Hjaltalín og Reykjavík!
Tónleikarnir hefjast kl. 19. Sölu-
bás verður á staðnum þar sem
fullt tillit verður tekið til kreppu-
ástandsins.
Kvöld með kima
Forsíða síð-
asta tölublaðs
Reykjavik
Grapevine hef-
ur vakið mikla
athygli enda
um sérlega
hugmyndaríka
útfærslu á
þeirri efna-
hagslegu vá
sem nú steðjar að þjóðinni. „Wel-
come to Icelandistan“ (Velkominn
til Íslandistan) stendur svo með
stórum stöfum á forsíðu blaðsins og
vísar væntanlega bæði til þess orðs
sem nú fer af þjóðinni í útlöndum
sem og þess ástands sem hér mun
vara um ókomin ár.
Blaðið mun standa fyrir daglegri
útgáfu tónlistarblaðs sem nefnist
Grapevine Airwaves á meðan tón-
listarhátíðin Iceland Airwaves
stendur yfir.
Tónlistarhátíð
í Íslandistan
Eins og á fyrri hátíðum verður
Norræna húsið opið dagana sem
Airwaves stendur yfir og þar verð-
ur boðið upp á norræna næringu
fyrir sál og líkama.
Þar spila hljómsveitir frá hinum
Norðurlandaþjóðunum um og eftir
hádegisbilið fimmtudag, föstudag
og laugardag og byrjar dagurinn
þar á lágstemmdum og afslöpp-
uðum nótum. El Perro del Mar hef-
ur leikinn klukkan 12 á morgun.
Tónleikarnir eru ókeypis, en um
leið verður hægt að kaupa síðbúinn
morgunverð í mötuneyti hússins.
Lágstemmt
og norrænt
Meðfram opinberri dagskrá Airwaves eru
keyrðir tugir viðburða sem eru ekki hluti af op-
inberri dagskrá hátíðarinnar. Tónelskandi menn
og konur út um allan miðbæinn stökkva til og
nýta sér gegnumstreymi hljómsveita og tónlist-
aráhugafólks og miðbær Reykjavíkur breytist í
eitt allsherjar tónlistargill þar sem stór-
tónleikum er hent uppi í barhorninu eins og ekk-
ert sé sjálfsagðara. Enda er ekkert sjálfsagðara!
Á meðal þeirra staða sem bjóða upp á slíkt í
kvöld eru 12 Tónar, Hljómalind, Mál og menn-
ing, Kaffibarinn og Babalú, Skólavörðustíg. Af-
farasælast er þó að líta inn á heimasíðu hátíðarinnar, www.icelandairwa-
ves.com, og kynna sér þessa „off-venue“ hlið hátíðarinnar enda óðs manns
æði að ætla að kynna hana alla hér.
Út fyrir Airwaves
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
RAFTÓNLISTARMAÐURINN Klive, eða Úlfur Hans-
son, er einn fjölmargra sem koma í fyrsta skipti fram á
Airwaves í ár. Þreytir nokkurs konar Airwaves-
sveinspróf ef svo mætti segja. Klive gaf út plötuna
Sweaty Psalms síðasta haust, tilraunakennt verk sem
byggðist m.a. á umhverfis-hljóðbútum, en á Airwaves
mun kveða við annan tón.
„Mig langaði til að gera eitthvað flott, eitthvað öðru-
vísi út af Airwaves,“ útskýrir Úlfur. „Fjórar stelpur úr
Wonder-Brass verða með mér ásamt söngkonunni Rósu
Birgittu Ísfeld. Sjálfur spila ég á bassa og svo verður
tónlist úr tölvu. Þetta verður meira „læf“ og verkið er ein
löng samfella.“
Úlfur er hæstánægður með að fá að taka þátt í Airwa-
ves.
„Það er klikkað að fá að vera með. Þetta er algjör
jólahátíð íslenskrar tónlistar. Ég verð að viðurkenna að
ég hef sjaldan farið vegna fjárskorts en í stað þess stund-
að þessi „off-venue“ grimmt (tónleikar sem eru ekki und-
ir opinberri dagskrá Airwaves). Það er eitt það jákvæð-
asta við hátíðina, hún kemur svo mörgu öðru af stað. Það
fer allt í gang í kringum þessa hátíð og hljómsveitir fæð-
ast á meðan eða í kjölfarið. Annars líst mér mjög vel á
hátíðina í ár og er einna spenntastur fyrir Fuck Buttons,
Robots in Disguise og Final Fantasy.“
Sveinsprófið: Klive
Flottara fyrir Airwaves
Klikkað Klive fer í sparifötin og ætlar að magna upp
mikinn seið á Airwaves.
Klive kemur fram á Hressó í kvöld kl. 20.00. Þá spilar
hljómsveit hans, Swords of Chaos, á sama stað á morg-
un kl. 22.15.
Eftir Birgi Örn Steinarsson
biggi@mbl.is
ARNÓR Dan Arnarsson, söngvari
Agent Fresco, var aðeins 16 ára þeg-
ar hann komst fyrst inn á Iceland
Airwaves. Hann bjó þá í Danmörku
og var svo lánsamur að geta narrað
út frípassa inn á hátíðina gegn þeim
rökum að hann væri á starfskynn-
ingu. Til að sleppa við múður frá
dyravörðum klæddi hann sig í „full-
orðinslegri“ föt og komst hjá því að
þurfa að sýna skilríki.
„Ég varð ástfanginn strax,“ segir
Arnór. „Það passar svo vel að hátíð-
in er alltaf á sama tíma og gefið er
svokallað kartöflufrí í dönskum skól-
um þannig að ég hef reynt að fara
hvert ár eftir þetta.“
Arnór fluttist svo heim fyrir
tveimur árum og endaði óvænt sem
söngvari í sigursveit Músíktilrauna í
ár en þá hafði hún aðeins starfað í
þrjár vikur. Síðan þá hefur Agent
Fresco spilað látlaust og átt lag í
efsta sæti X-Dominos-listans. Sveit-
in er á frábærum stað á Nasa í kvöld
en þar þreytir Fulltrúi Fresco
sveinspróf sitt á Airwaveshátíðinni.
„Þetta eru eflaust mikilvægustu
tónleikar okkar til þessa. Aðallega út
af þeirri athygli sem okkur gefst
þarna. Við erum náttúrlega nýbyrj-
aðir og erum bara að klára fyrstu
þröngskífuna okkar. Það er ótrúlegt
hvað þessi hátíð gerir fyrir Ísland.
Þetta er bara eitt stórt partí, auglýs-
ing fyrir landið og frábær tækifæri
fyrir hljómsveitir að koma sér á fram-
færi. Enda ætlum við að spila eins
mikið og við getum yfir hátíðina.“
Auk þess að spila á Nasa í kvöld
leikur Agent Fresco í Skífunni á
morgun, Prikinu á föstudagsmorgun
og á Hressó á föstudagskvöldið.
Sveinsprófið: Agent Fresco
Mikilvægustu tónleikar ferilsins
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Agent Fresco Eru á frábærum stað á dagskránni í kvöld. Og nei, þetta er
ekki rauðhærður Seth Rogen sem er þriðji frá vinstri.
Agent Fresco fer á svið á Nasa í
kvöld kl. 23.00.