Morgunblaðið - 20.11.2008, Síða 14

Morgunblaðið - 20.11.2008, Síða 14
14 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. NÓVEMBER 2008 Stjórn Sameinaða lífeyrissjóðsins boðar til kynningar- fundar fyrir sjóðfélaga kl. 20.00 í kvöld, 20. nóvember 2008, á Grand Hótel, Sigtúni 38 í Reykjavík. Sjóðfélagar eru hvattir til að mæta, en á fundinum verða veittar upplýsingar um rekstur og afkomu sjóðsins. DAGSKRÁ Kl. 19.45 Húsið opnað Kl. 20.00 Fundarsetning Umfjöllun um stöðu sjóðsins Þorbjörn Guðmundsson, formaður stjórnar Upplýsingar um rekstur Kristján Örn Sigurðsson, framkvæmdastjóri Áhrif fjármálakreppunnar á lífeyrissjóðarekstur Hrafn Magnússon, framkvæmdastjóri Landssamtaka lífeyrissjóða Umræður og fyrirspurnir Kl. 21.45 Áætluð fundarlok SJÓFÉLAGAFUNDUR Í KVÖLD Borgartúni 30 • 105 Reykjavík • S. 510 5000 mottaka@lifeyrir.is • lifeyrir.is Eftir Magnús Halldórsson magnush@mbl.is „ÞÓ ekki sé um miklar fjárhæðir að ræða, sem áttu að koma í hlut hvers og eins, þá finnst mér augljóst mál að starfsemi Giftar þurfi að rann- saka með hagsmuni þeirra sem áttu í raun skuldbindingar félagsins,“ segir Björn Guðmundsson, íbúi á Laugum í Reykjadal, og einn þeirra rúmlega 50 þúsund fyrrverandi tryggingartaka Samvinnutrygginga sem eiga rétt á hlutum í Gift. Gift var stofnað utan um skuld- bindingar eignarhaldsfélags Sam- vinnutrygginga á sumarmánuðum í fyrra. Eigið fé var þá um 30 millj- arðar. Ákveðið var að slíta eign- arhaldsfélaginu og dreifa eign- arhaldinu til þeirra sem áttu eignarréttindi í Gift, það er fyrrver- andi tryggingartaka Samvinnu- trygginga á árunum 1987 og 1988. Eins og greint hefur verið frá í Morgunblaðinu er félagið illa statt eftir fall bankanna og eru skuldir fé- lagsins talsvert umfram eignir þess. Þá er félagið enn án stjórnarfor- manns eftir að Sigurjón Rúnar Rafnsson, aðstoðarkaupfélagsstjóri Kaupfélags Skagafjarðar, sagði af sér. Björn telur að búa þurfi til vett- vang fyrir þá sem eiga rétt á eign- um Giftar, ef einhverjar eru. „Þessi stórfelldu viðskipti Giftar virðast hafa verið í besta falli gjörsamlega siðlaus og í versta falli lögleysa af verstu sort. Það þarf að komast til botns í því, fyrir alla þá sem lögðu grunn að þessu félagi með því að borga samviskusamlega til Sam- vinnutrygginga, hvernig það gat gerst að ákveðnir aðilar innan Sam- vinnuhreyfingarinnar gátu notað fjármuni í valdabrölti í viðskiptalíf- inu, sem þeir höfðu ekki umboð til þess að fara með. Fyrst allir pening- arnir eru búnir, og ekkert eftir nema milljarðaskuldir, verður að rannsaka þessi mál ofan í kjölinn og draga menn til ábyrgðar, ýmist fyr- ir siðleysi eða lögbrot,“ segir Björn. Skilanefnd Samvinnutrygginga, sem Kristinn Hallgrímsson hrl. stýrir, bíður þess að fá upplýsingar um stöðu Giftar frá stjórn félagsins svo að hægt sé að meta hversu mikl- ar eignir verða til skiptanna ef til slita kemur. Stærstu einstöku eignir Giftar áð- ur en Fjármálaeftirlitið tók yfir Glitni, Landsbankann og Kaupþing voru í Kaupþingi og fjárfesting- arfélaginu Exista. Hlutur félagsins í Kaupþingi var 12,5 milljarða króna virði þegar bankinn var tekinn yfir. Hlutur félagsins í Exista er nú 2,8 milljarða króna virði en var þegar mest lét á milli tíu og tuttugu millj- arða króna virði. Gift á einnig um þriðjungshlut í eignarhaldsfélaginu Langflugi á móti FS7 ehf. sem er í eigu Finns Ingólfssonar, fyrrverandi viðskipta- og iðnaðarráðherra og seðla- bankastjóra. Félagið er stærsti ein- staki hluthafinn í Icelandair Group með rúmlega 23 prósent hlut sem er ríflega þriggja milljarða króna virði miðað við núnverandi gengi. Björn hefur þegar sett sig í sam- band við Sigurð G. Guðjónsson hrl. með það í huga að hann leiði vinnu til að gæta hugsmuna þeirra sem rétt eiga á hlutum í Gift komi til þess að félaginu verði skipt milli þeirra sem rétt eiga til eignar í fé- laginu. Vill Gift-rannsókn Rannsóknar er krafist á því hvort lög hafi verið brotin í starfsemi Giftar fjárfestingarfélags af hálfu rétthafa í Gift Morgunblaðið/ÁrniSæberg Höfuðstöðvar Fjárfestingarfélagið Gift skuldar meira en það á. Í HNOTSKURN » Yfir 50 þúsund mannseiga rétt á því að eignast hlut í Gift komi til þess að fé- laginu verði skipt upp. » Síðustu tveir stjórn-arformenn Giftar hafa verið fulltrúar Kaupfélags Skagfirðinga í stjórn STANGVEIÐI Eftir Einar Fal Ingólfsson efi@mbl.is Í KJÖLFAR útboðs á hinum rómuðu urriðasvæðum í Laxá í Mývatnssveit og Laxá í Laxárdal í vor, samdi veiðifélagið við Stangaveiðifélag Reykjavíkur. Stjórn SVFR hyggst afgreiða umsóknir um veiði á svæð- unum sérstaklega en umsókn- arfrestur um leyfin í Laxá rennur út 10. desember. Á efra svæðinu, í Mývatnssveit, verður veitt á 14 stangir en á 10 í Laxárdal. Eins og fram kom í út- boðsferlinu hét SVFR því að þeir veiðimenn sem veitt hafa reglulega í Laxá njóti forgangs, og að sögn Páls Þórs Ármanns, framkvæmdastjóra SVFR, verður staðið við það. „Þeir sem hafa verið tryggir svæðunum njóta þess. Veiðireynsla undanfarinna fimm ára gildir í út- hlutuninni,“ segir Páll. Hann segir að þessi leyfi séu seld sérstaklega þar sem um stóran samning sé að ræða og félagið vilji sjá hvar það standi með hann. Þeir vilji hafa möguleika á að selja leyfin annars staðar ef eftirspurnin reyn- ist minni en reiknað er með. „Þetta er veruleg viðbót fyrir fé- lagið – um 2.200 stangardagar – og við finnum fyrir miklum áhuga á leyfunum. Enda er þetta eitt falleg- asta og gjöfulasta urriðasvæði á Ís- landi – og þó víðar væri leitað.“ En hækkar verðið? „Samningurinn er vísitölubund- inn. Við gerðum tilboðið í maí og síðan hefur verðbólgan farið á flug. Við reynum hins vegar að hafa verðlagningu eins skynsamlega og unnt er. Vissulega hækka leyfin. Ef verðið á leyfum á svæðinu í fyrra, 17.000 krónur er uppreiknað, myndu þau kosta um 21.000. Við er- um að selja dagsstöngina á 21.800 til 28.900.“ Á næstunni verður auglýst eftir rekstraraðila fyrir veiðihúsin. Páll segir að rekstur þeirra verði fast- mótaðri, fullt fæði og uppbúin rúm fyrir veiðimenn. SVFR að hefja sölu veiði- leyfa á urriðasvæðin í Laxá Morgunblaðið/Einar Falur Draumasvæði margra Sigurbrandur Dagbjartsson togast á við urriða í Laxá í Mývatnssveit.  2.200 stangardagar bætast við  Verðhækkun  Fastakúnnar ganga fyrir ENN er óljóst hvenær Glitnir gefur upp stöðu þeirra sjóða sem enn er eftir að slíta. Aðeins hefur verið gefið upp útgreiðsluhlutfall sjóðs 9 sem er 85,12 prósent af inneigninni fyrir bankahrunið. Skuldabréfasjóðir, hlutabréfasjóðir og aðrir peninga- markaðssjóðir bankans eru enn óuppgerðir. Eins er farið með þá sjóði í Kaupþingi og Landsbanka. Már Másson, upplýsingafulltrúi Glitnis, segir að uppgjörið á sjóðun- um verði á næstu dögum, en það taki sinn tíma því unnið sé að því að lág- marka tjón sjóðfélaganna. Einnig er eftir að tilkynna um hvort og þá hver skerðingin á sér- eignarsparnaði hjá Frjálsa lífeyris- sjóði Kaupþings, Íslenska lífeyris- sjóði Landsbankans og SPRON verður. Viðskiptavinir Byrs sem greiða í Lífsval eru í sömu stöðu. Byr hefur gert upp peningamarkaðssjóð sinn og fengu viðskiptavinirnir 94,9 prósent af inneigni sinni greidd. Út- greiðsluhlutfall SPRON var 85,52%. gag@mbl.is Margir í óvissu um sparifé sitt Í bankanum Fjöldi sjóða bankanna óupp- gerður og fólk því í óvissu um fé sitt. Fjöldi sjóða bank- anna enn óuppgerður

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.