Morgunblaðið - 20.11.2008, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 20.11.2008, Qupperneq 17
Fréttir 17INNLENT MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. NÓVEMBER 2008 WORLD FUTURE ENERGY SUMMIT Útflutningsráð Íslands annast skipulag á kynningarbás íslenskra fyrirtækja á ráðstefnunni World Future Energy Summit, sem haldin verður í Abu Dhabi í janúar 2009. Með þátttökunni skapast aðstaða fyrir íslensk fyrirtæki til að koma sér á framfæri við stóran hóp sérfræðinga á sviði orkuöflunar, orkudreifingar og annarra þátta er tengjast nýtingu endurnýjanlegra auðlinda. Íslensk orkufyrirtæki og verkfræðistofur búa yfir afar dýrmætri þekkingu á orkumálum. Brýnt er að koma henni á framfæri á breiðum vettvangi, þannig að möguleikar skapist á framtíðarverkefnum erlendis. Nánari upplýsingar veita Þorleifur Þór Jónsson, thorleifur@utflutningsrad.is, og Elsa Einarsdóttir, elsa@utflutningsrad.is hjá Útflutningsráði, sími 511 4000. Abu Dhabi 19.-21. janúar 2009 IP A R P IP A R A R A R P IP A R IP A R P IP A RR P IP A R PA R P IP A R A R P IP A R IP A R IP A R P IP A R P IP A R IP A R PA R PA R P IP A R IP A R IP A R P IP A R A R P IP A R IP A R IP A R IP A R IP A R PA R P IP A R P IP A R P IP A R AA P IP AAA P IP AAP P IPPPPPP P I P I P I PPPPPPPPPPPPPPPPPPPPPPP S ÍÍÍÍ S Í S Í S ÍÍ • S ÍÍÍÍ S ÍÍ • S Í • S Í • S • S • S • S • S • S • SS • S • S • S • S • S • S • S • S • S • S • S • S • S • S • SSS • S • S • S • S • S • S • S • SS • SSS •••• A • 8 • 8 A • 8 • 8 A • 8 • 8 • 8 • 8 • 88 • 8 A • 8888 A • 8 • 8 • 8 • 8 A • 888 A • 8 A • 8 • 8 A • 8 A • 888 A 8 A • 8 A • 8 A • 8 A • 8 A • 8 A 888 A • 8 A • 8 A • 8 A • 88 A • 88 A • 8 A • A • A •• A • AAAA 13 7 13 7 13 7 21 373713 7 21 37 21 37 21 37 21 37 21 37 21 3 21 3 21 3 21 3 21 3 21 3 21 3 21 3 21 3 21 3 21 3 21222222222222222222 Borgartún 35 • 105 Reykjavík • sími 511 4000 • www.utflutningsrad.is Eftir Unu Sighvatsdóttur una@mbl.is UMRÆÐAN um bann við vissum hundateg- undum skýtur reglulega upp kollinum meðal hundaunnenda og sýnist sitt hverjum. Ný- lega var því haldið fram á spjallsíðu að teg- undin Douge de Bordeux hefði bæst á bann- lista laga um innflutning dýra, þar sem fyrir eru hundategundirnar sem sjást hér að ofan. Björn Steinbjörnsson, sérgreinadýralæknir inn- og útflutnings hjá Matvælastofnun, segir það ekki rétt en hins vegar hafi reglur og eftirlit verið hert. „Það er stefna stjórnvalda að flytja ekki inn hunda sem geta verið hættulegir eigendum og umhverfi sínu. Í gegnum árin hefur verið tregða við að flytja inn vissar tegundir en síðan var slakað á því vegna þrýstings frá almenningi. Það eru teg- undir eins og Rottweiler og Doberman, en í ljósi atburða undanfarinna tveggja ára er það mat okkar að það beri að þrengja þessar reglur aftur.“ Stefnan sé eftir sem áður ekki sú að banna nýjar tegundir, heldur verði virkara eftirlit og skapgerðarmat m.a. látið vega mun þyngra. „Við höfum undanfarin tvö ár tekið þessar tegundir sem ég nefndi eingöngu inn í landið að undangengnu skapgerðarmati en það hefur engu að síður gerst að við höfum þurft að senda út aftur hunda sem við höfð- um veitt leyfi.“ Skapgerðarmat hafi því verið of teygj- anlegt gagnvart þeim hundum sem rakið geta ættir sínar til svokallaðra vígahunda, það þjóni hins vegar ekki hagsmunum al- mennings að fá svo stór og grimm dýr inn í landið. „Áður fyrr voru þessir hundar rækt- aðir til þess að vera sérstaklega grimmir og þar á meðal er Douge de Bordeux. Hættan á að þetta blundi í einstaklingnum er til staðar og það gefur augaleið að sá sem tekur að sér hund sem er bæði stór og býr yfir grimmd- areðli, þarf að vita hvað hann er með í hönd- unum.“ Björn bendir á að í Sviss beri fólki skv. lögum að fara á námskeið í meðhöndlun slíkra hunda áður en því er veitt leyfi til að eignast þá. Þess eru dæmi erlendis að þessir hundar hafi bitið mann og annan og jafnvel drepið fólk. Þótt svo alvarleg atvik hafi ekki komið upp á Íslandi, segir Björn að hætta geti stafað af hundum hér. „Það hafa komið upp nokkur tilfelli en eitt tilfelli er alveg nóg vegna þess að við erum bara að hugsa um að þeir einstaklingar sem koma hingað séu ekki hættulegir umhverfinu.“ Bannaður: 48-61 cm hár og 16-29 kg þungur. Getur verið árásargjarn án eftirlits. Einnig bannaður í Bretlandi, Hollandi og sumum fylkj- um Ástralíu og Kanada. Vinsæll í hundaati. Bannaður: 60-75 cm og 40-50 kg. Einstaklega tryggur húsbændum sínum en dylur ekki and- úð sína á ókunnugum. Bannaður m.a. í Ísrael, Ástralíu og Bretlandi. Afburða varðhundur. Bannaður: Meðal stærstu hunda sem ræktaðir hafa verið, allt að 70 cm og 90 kg. Hann er bann- aður víðast hvar í Vestur-Evrópu og Bandaríkj- unum. Vinsæll varðhundur og í hundaati. Bannaður: Einna öflugastur bardagahunda sem ræktaðir hafa verið. 60-68 cm og um 40 kg. M.a notaður til að vernda búfé gegn fjalla- ljónum og til veiða á villisvínum. Nánar fylgst með vígahundunum  Reglur um innflutning hunda hafa verið hertar í ljósi fenginnar reynslu undanfarin tvö ár  Ekki stendur til að bæta fleiri tegundum á bannlista en lagt nánara mat á skapgerð og uppruna Pit Bull Terrier Fila Brasileiro Toso Inu Dogo Argentino BÓNUS var oftast með lægsta verðið þegar verðlagseftirlit ASÍ kannaði verð á matvöru í lágverðs- verslunum og öðrum stórmörkuðum á höfuðborgarsvæðinu síðastliðinn þriðjudag. Í ljós kom að Nóatún var oftast með hæsta verðið í könn- uninni. Í greinargerð ASÍ um niðurstöð- urnar kemur fram að vísbendingar hafi komið í ljós um að verðmunur á milli lágverðsverslana og annarra stórmarkaða sé að minnka. Samanburðurinn leiðir í ljós að í Bónus var lægsta verð á 31 af 50 vörum sem kannaðar voru en Fjarðarkaup og Kaskó voru næst- oftast með lægsta verðið eða í 7 til- vikum. „Nóatún reyndist með hæsta verðið á 34 af 50 vörum sem skoð- aðar voru en Hagkaup var næst- oftast með hæsta verðið eða á 11 vörum,“ segir í frétt um könnunina sem birt er á vefsíðu ASÍ. Mestur verðmunur í könnuninni var á kílóverði á heilum ferskum kjúklingi sem var dýrastur kr. 1.070 í Nóatúni og Fjarðarkaupum, en ódýrastur kr. 525 í Nettó sem er 104% verðmunur. Minnstur verðmunur reyndist hins vegar á kílóverði á forverð- merktum Skólaosti sem kostaði kr. 1.190 í Bónus, Krónunni og Fjarð- arkaupum þar sem veittur er 5% af- sláttur af merktu verði við kassa, en kr. 1.253 í öllum öðrum verslunum. Verðmunur á vörum fyrir jólabaksturinn Í könnuninni var m.a. skoðað verð á nokkrum algengum bökunar- vörum í jólabaksturinn, s.s. hveiti, sykri, smjöri, hnetum, súkkulaði og vanilludropum, og reyndist í flest- um tilvikum talsverður munur á hæsta og lægsta verði þessara vara. „Sem dæmi má nefna að 42% mun- ur var á Ljóma smjörlíki sem var ódýrast kr. 147 í Bónus en dýrast kr. 209 í Nóatúni, og 74% verðmun- ur var á glasi af vanilludropum sem kostuðu kr. 97 í Bónus en kr. 169 í Samkaupum-Úrvali. Munur á hæsta og lægsta verði hefur minnkað talsvert Vakti athygli að munur á hæsta og lægsta verði á þeim vörum í könnuninni sem einnig voru skoð- aðar í sambærilegri könnun í þess- um sömu verslunum í mars hefur í flestum tilvikum minnkað talsvert. Sem dæmi er nefnt að munur á hæsta og lægsta verði á Fitty sam- lokubrauði var 77% í mars en er nú 32% og munur á hæsta og lægsta kílóverði á banönum var 153% í mars en er nú 83%. „Þetta gefur vísbendingu um að verðmunur á milli lágverðsverslana og annarra stórmarkaða sé að minnka,“ segir í umfjöllun Alþýðu- sambandsins. omfr@mbl.is Oftast lægst verð í Bónus Morgunblaðið/Árni Sæberg Innkaup Samkvæmt könnuninni er Bónus enn með lægsta verðið í lang- flestum tilfellum en verðmunur á milli verslana hefur minnkað. Vísbendingar komnar fram um að verðmunur milli lágverðsverslana og annarra stórmarkaða sé að minnka Í HNOTSKURN » Stærri pakkningar virðastekki alltaf skila sér í lægra einingaverði. » Hagstæðara var að kaupatvær eins kílós pakkningar en eina tveggja kílóa af strá- sykri frá Dansukker í Hag- kaupum, Nóatúni og Sam- kaupum-Úrvali. » Það sama á við um Kons-um suðusúkkulaði sem bæði er til í 200 g og 300 g pakkningum í Hagkaupum og Nóatúni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.