Morgunblaðið - 20.11.2008, Blaðsíða 43
Loksins, loksins tilkomumikiðskáldverk, sem rís eins oghamraborg upp úr flat-
neskju …“ Þannig hefst einn fræg-
asti ritdómur Íslandssögunnar,
dómur Kristján Albertssonar um
Vefarann mikla frá Kasmír. Andköf
vegna listrænnar snilldar stýrðu þó
ekki þessum stuldi mínum á þessum
fleygu upphafsorðum. Ég er reynd-
ar að tala um skáldverk, nánar til-
tekið frumsamda hljómplötu, en ég
á engan veginn von á því að hún
muni rísa eins og hamraborg upp úr
flatneskju. Nei, þessi pistill er fyrst
og fremst ritaður til að fagna því að
svo virðist sem ný plata Guns’n’Ro-
ses, Chinese Democracy komi loks-
ins, loksins, loksins út nú á sunnu-
daginn. Hver hefði trúað því. Ekki
ég. Og ég trúi því ekki enn. Ég trúi
því ekki fyrr en ég held á efnis-
legum grip í höndunum.
Til eru fræg dæmi úr rokksög-unni um plötur sem allur heim-
urinn hefur beðið eftir með óþreyju
(á þann veg er fréttaflutningurinn
a.m.k.). Iðulega hefur viðkomandi
hljómsveit eða listamaður gefið út
meistaraverk og í kjölfarið stig-
magnast því spennan eftir næsta
„meistaraverki“. Pressan á viðkom-
andi listamenn verður af þessum
sökum óheyrileg og flestir kikna
undan álaginu. Þeir hætta störfum
eða setja verkið á hilluna fyrir fullt
og fast. Nú, eða gefa næstu plötu,
plötuna sem heimsbyggðin hefur
beðið eftir með öndina í hálsinum,
út eftir x langan tíma. Og ekki er að
spyrja að því að verkið á ekki einn
einasta möguleika á að standa undir
væntingum. Ef menn missa meðvind
fjölmiðla og aðdáenda er þetta
dauðadæmt.
Góð dæmi um ofangreint er t.a.m.The Second Coming með Sto-
nes Roses og SMiLE með Beach Bo-
ys/Brian Wilson. Ekkert dæmi er þó
jafn svaðalegt, jafn súrrealískt og
þessi blessaða plata Guns’n’Roses.
Sveitin er nú einsmannssveit hins
mjög svo sérlundaða Axl Rose og
greinarnar sem skrifaðar hafa verið
um þessa mestu plötutöf rokksög-
unnar myndu fylla nokkrar bækur.
Upptökur fyrir Chinese
Demo crazy hófust árið 1994 í kjöl-
far tökulagaplötunnar The Spag-
hetti Incident? en sveitin var þá orð-
in það trosnuð að ekkert af viti
komst inn á band. Meðlimir gengu í
kjölfarið út einn af öðrum og í kjöl-
farið fór langavitleysan af stað.
Meðlimir hafa komið og farið, upp-
tökustjórar sömuleiðis og tugmillj-
ónir dollara hafa verið settar í plöt-
una. Lagaflækjur, kærur og almenn
steypa hefur þá ekki hjálpað. Eng-
inn mannlegur máttur virtist ráða
við þrjóskuna í Axl. Platan hefur
eiginlega öðlast sjálfstætt líf og
maður trúir því trauðla að listrænt
stolt og fullkomunarárátta hafi ver-
ið valdur að þessum drætti. Axl hef-
ur fyrst og fremst verið í tómu
rugli. En mikið hlýtur hann samt að
vera feginn að vera búinn að koma
þessu myllusteini af sér.
Platan kemur semsagt út ásunnudaginn. Ja, nema Axl
Rose sjái ástæðu til að kippa að sér
höndum í milljónasta skipti. Og það
eru reyndar allgóðar líkur á að það
gerist. Leggjumst því á bæn gott
fólk, líkt og við höfum gert und-
anfarin fjórtán ár. Og þá mun plat-
an verða sú fyrsta í þríleik, sem út
kemur á næstu árum. Við þessum
fréttum er ekki hægt annað en segja
kaldhæðnislega: „Einmitt!“
arnart@mbl.is
Axl Rose Bjáni? Snillingur? Bæði? Kippir hann aftur að sér höndum? Í öllu
falli eru vegir þessa rauðhærða rokkara með öllu órannsakanlegir.
» Svo virðist sem ný plata Guns’n’Ros-
es, Chinese Democracy
komi loksins, loksins,
loksins út nú á sunnu-
daginn.
Loksins,
loksins!
AF LISTUM
Arnar Eggert Thoroddsen
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. NÓVEMBER 2008
Sími 564 0000
Þú færð 5 %
endurgreitt
í Smárabíó
ar bíómiðann með Kreditkorti tengdu Aukakrónum!
50 kr. afsláttur ef þú kaupir bíómiðann á
Sýnd kl. 5, 7:30 og 10 POWERSÝNING
Quantum of Solace 4-5:30-6:30-8-9-10:30 B.i. 12 ára
Quantum of Solace kl. 5:30 - 8 - 10:30 LÚXUS
Quarantine kl. 10:10 B.i. 16 ára
My Best Friend´s Girl kl. 5:40 - 8 - 10:20 B.i. 14 ára
Reykjavík Rotterdam kl. 5:50 - 8 B.i. 14 ára
Skjaldbakan og Hérinn kl. 3:45 650 kr. fullorðnir - 550 kr. börn LEYFÐ
Lukku Láki kl. 3:45 650 kr. fullorðnir - 550 kr. börn LEYFÐ
Brjálæðislega fyndin
mynd í anda American Pie!
650 kr. fyrir fullorðna
- 550 kr. fyrir börn
SÝND Í SMÁRABÍÓI SÝND Í SMÁRABÍÓISÝND Í SMÁRABÍÓI
Sýnd kl. 8 og 10:15
EINI MAÐURINN
SEM HANN GETUR TREYST
... ER HANN SJÁLFUR
Á ÍSLANDI!
2 DÖGUM!
ÁRSINS!
RA TÍMA Á ÍSLANDI!
S.V. MBL
eeee
- Ó.H.T, Rás 2
eee
- L.I.B, Topp5.is/FBL
Tekjuhæsta mynd allra tíma á Íslandi!
Sýnd kl. 6 og 8
500 kr á allar sýningar
sem eftir eru
SÍÐASTA SÝNINGARVIKA
500 kr.
Ver
ð a
ðei
ns
650
kr.
POWERSÝNING
KL 10
Á STÆRSTA TJALDI LANDSINS
MEÐ DIGITAL MYND OG HLJÓÐI
Sýnd kl. 6
(650 kr.) m/ íslensku tali
www.laugarasbio.is
M.A. BESTI LEIKSTJÓRI
OG BESTA HANDRIT
5 EDDUVERÐLAUN!
-bara lúxus
Sími 553 2075
STÆRSTA OPNUN ÁRSINS!
NÆST STÆRSTA OPNUN ALLRA TÍMA Á ÍSLANDI!
TOPPMYNDIN Á ÍSLANDI!
45.000 MANNS Á 12 DÖGUM!
forsýnd á
laugardag kl. 4
M Y N D O G H L J Ó Ð
Sýnd kl. 10
Þú færð 5 % endurgreitt í Laugarásbíó ef þú greiðir með kreditkorti tengdu Aukakrónum
ÁSTRALSKI leikarinn Hugh Jack-
man hefur verið valinn kynþokka-
fyllsti karlmaður í heimi af tímaritinu
People. Ástæðan fyrir valinu ku vera
fjölhæfni Jackmans sem leikara og
glæsilegur vöxtur hans. Jackman er
40 ára og að sögn löndu hans Nicole
Kidman fær hann kvenfólk til að
stama „Guð minn góður“ þegar hann
nálgast.
Á eftir Jackman á listanum þetta
árið er James Bond-leikarinn Daniel
Craig, Jon Hamm, úr sjónvarpsþátt-
unum Mad Men, er sá þriðji, ung-
stirnið Zac Efron fjórði og Robert
Buckley úr Lipstick Jungle fimmti.
Fótboltamaðurinn David Beck-
ham, leikararnir Javier Bardem,
Robert Pattinson og Joshua Jack-
son og sundkappinn Michael Phelps
komust líka allir á listann.
People velur kynþokkafyllsta karl-
manninn á hverju ári og þeir sem
hafa hlotið titilinn eru m.a. George
Clooney, Brad Pitt og Matt Damon.
Kynþokka-
fullur kappi
Reuters
Kynþokkafyllstur Hugh Jackman
og kona hans, Deborra-Lee Furness.
Númer tvö Daniel Craig með unn-
ustu sinni Satsuki Mitchell.