Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.03.1926, Side 9

Skinfaxi - 01.03.1926, Side 9
SKINFAXI 9 nm lians: Hverfum aftur til náttúrunnar, þ, e.: til liins einfalda, hreina og heilbrigða lífs þeirra manna, er lifa i nánu og barnslega innilegu samlífi við hina miklu móður náttúru. Holl og gott væri islenskum bænda- efnum að kynnast slíkri stefnu, þar sem hún væri bor- in fram með mestum þrótti og festu. Og réttur hjartans er helgasti réttur lífsins. ]?að er ekkert vafamál, að hægt væri að efla íslensk hjörtu með slíkum kynnum og kenna íslenskum landnemum hin réttu handtök, — hin réttu móðurhandtök, er hið nýja líf krefst. pjóðskáldið Einar Benediktsson hefir ort sti'irsvip- mikið og sannort kvæði. Eg á við kvæðið: „Væringjar“. Hann sér ísland i dögun á annari öld, nýja og merki- lega tíma í framsýn. Og þjóðin á að sigra, ekki með „vopnanna fjöld“, heldur með vikingum andans um staði og hirðir. Svo sér hann börnin íslensku, er rétta sig limalöng, því að litla stofan er orðin svo þröng. Útþrá, vaxtarþrá fslendingsins er vöknuð. pá liorfir hann yfir svið sögunnar og hann sér mikla frægð ís- lendinga, er þeir hlutu, livar sem þeir komu. „pá nefnd- ist hér margur til metnaðs og hróss, frá Miklagarði til Niðaróss.“ pá stóð hámenning íslands, sem æskuna dreymir. ]?á sér hann íslenskan nútíma mann, Vær- ingjann, í förum út um heim til að framast og þrosk- ast. Hans dugur er seigur og djúp hans úð — og draum- ar hans um dáðir og listir munu rætast. En heim snýr hans far. Á þeim lnig er ei brigð. pvi hélt liann út snemma, að fyrr mætti lenda. Hans þroski er skuldaður bernskunnar hygð, því ber liann um seglin, þá rétt er að venda. f glauminum öllum hann geymdi sín sjálfs. Hann var góðvinum hollur, eu laus þó og frjáls. Svo skal Væringjans lag alla veröld á enda. Sé eyjunni borin sú fjöður sem flaug, skal liún fljúga endur til móðurstranda.

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.