Skinfaxi - 01.03.1926, Qupperneq 12
12
SKINFAXI
7. Pétur Bergsson, frá Helgafelli, Mosfellssveit.
8. porsteinn Kristjánsson, Reykjavík.
9. Sigurður Greipsson, Haukadal, Árnessýslu.
10. Jón pörsteinsson, kennari og leiðtogi flokksins.
Eftir þetta var farið að þjálfa flokkinn fyrir alvöru.
Glímur og leikfimi var iðkað 2—3 stundir daglega. Sá
eini fjárstyrkur, sem fékst til fararinnar, var kr. 800,
frá U. M. F. 1., eða kr. 80 á mann. Varð því hver ein-
stakur að leggja mikið á sig fjárhagslega til þess að
geta orðið með í förinni.
Snemma í fyrra vetur var skrifað til Norges
Ungdomslag* og skýrt frá þessari hugmynd, og
það Ijeðið um að semja ferðaáætlun fyrir flokkinn.
Ákveðið var að hefja förina 21. maí. pvi skildist öll-
um að undirbúningstiminn var naumur, og varð þvi
að nota hann vel.
Vér vissum,. að það var mikil ábyrgð, sem hvildi á
oss, gagnvart þjiVð vorri, og að vér yrðum því að vanda
framkomu vora, sem best. Að sjálfsögðu mátti eng-
inn af oss neyta neins tóbaks eða áfengis.
Nokkrar sýningar voru haldnar hér heima, áður en
farið var utan. Sýningar þessar fóru fram í Reykjavík,
Hafnarfirði, Eyrarbakka og Stokkseyri, voru þær nauð-
synlegur undirbúningur fyrir aðalförina. Var yfirleitt
vel látið yfir sýningunum. Einkum vil eg þakka Eyr-
bekkingum og Stokkséyringum fyrir góðar viðtökur.
Eg minnist og ýmsra mætra manna, sem létu ánægju
sina í Ijósi yfir þessari framtakssemi vorri og spáðu
góðu um förina, svo sem þeir Magnús Helgason, skóla-
stjóri og Jón pórarinsson, fræðslumálastjóri.
21. maí, kl. (i síðdegis álti „ Mercur“ að leggja af stað
frá Reykjavik áleiðis til Bergen. Veður var hið fegursta.
Margt fólk fylgdi oss á skipsfjöl og óskaði oss góðrar
* Samband norskra ungmennafélaga.