Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.03.1926, Page 15

Skinfaxi - 01.03.1926, Page 15
SKINFAXI 15 l)lásið í lúðra „Eldgamla Isafold,“ þvi næst var gengið i skrúðgöngu, skamt upp fyrir bæinn. Er þar dálítil kvos, með hálfgrónu sandskeiði. par átti glíman að fara fram. Vér höfðum fataskifti í húsi þar skamt frá og gengum fylktu liði undir fána vorum til leikvallarins. Fánavörður þessarar sýningar var próf. S. Nordal. Völl- urinn var of láús til þess að hægt væri að neyta sínu, sem skyldi. Glíman stóð yfir % klst. Var liún vel rómuð. pakkaði Patursson oss fyrir komuna og mintist þess, að enn fyndust hraustir menn á íslandi, sem til forna, þá er pormóður Kolbrúnarskáld og fleiri liraustir drengir hefðu heimsótt Ólaf helga. Að ræðunni lokinni var hróp- að ferfalt húrra fyrir íslandi og íslendingum. Færeyingar sýndu oss í allri framkomu sinni hina mestu alúð og leyndi það sér hvergi, að vér vorum þeim kærkomnir gestir. Að síðustu var l)lásið i horn: „Ó guð vors lands“. J. Patursson fylgdi oss til skips og óskaði oss allra fararheilla. „Merkur“ átti að koma til Björg- vinjar 26. mai. Átti þá að halda oss veglegt samsæti um kveldið. En sökum storma alla leiðina út, náðum vér eigi til Björgvinjar fyr en á miðnætti 26. maí. Sváfum vér um borð í „Mercur“ um nóttina. Næsta morgun kl. 8 'komu nokkrir Norðmenn til móts við oss, þar á meðal Eirik Hirth kennari og Skásheim bankaritari. Buðu þeir oss til kaffistofu Bændaungmennafélagsins, þáðum vér þar binar bestu viðtökur. Hér í Björgvin var undirbúningur allmikill undir komu vora. Höfðu ungmennafélögin skijjað nefnd lil þess að annast mót- tökuna og sýningarnar, og ennfremur að sjá oss fyrir ókeypis gistingu, meðan vér dveldum þar. Var oss nú sagt hvar vér ættum að búa, á meðan vér dveldum í Björgvin. Fórum við Jón með Eirik Hirth, en hinir bjuggu hjá biskup Hofnestad, Frú Rusten og próf. Hannás. það var ákveðið, að þennan sama dag færi fram

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.