Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.03.1926, Page 19

Skinfaxi - 01.03.1926, Page 19
SKINFAXI 19 þarna fjöldi í'ólks. Skemti fólk sér liiö i)esta við það að horfa á glímuna. pennan sama dag fórum vér til Leirvikur á Stord. Komum við þangað seinl um kveldið og gistum þar um nóttina. Daginn eftir (2. júní) fórum vér í bíl til Sewnin Eskelands, skólastjóra við kennaraskólann á Stord. Áttum vér að halda sýningu þennan dag þar i skólanum. Var oss hoðið þar til miðdegisverðar. Sát- uin vér þar til borðs með kennurum og nemendum skól- ans, voru það yfir 200 manna. Virtist hvíla hin mesta reglusemi og myndarbragur yfir þessu skólaheimili. Skemtum vér oss þar fram eftir deginum með því að skoða oss þar um bekki. Sýningin fór fram kl. 8 um kveldið. Að henni lok- inni sté S. Eskeland fram og þakkaði oss fyrir komuna. Sagði hann að i þessari íþrótt, sem i mörgu öðru fynd- ist glöggur skyldleiki i millum Norðmanna og íslend- inga. T. d. sagði hann að þektist í sumum sveitum Nor- egs, buxnatök, hryggspenna og axlatök. En hjá Islend- ingum væri þetta hreinræktuð íþrótt, fögur og fræki- leg, og þeir Islendingar sem hér væru og sýndu þessa íþrótt, þeir sýndu einnig dug og' dáð, sem ímynd þeirrar þjóðar, er Iiefir þrek til þess að standa sjálfstæð. „Velkomnir hingað, kæru frændur, hamingjan fylgi yður á ferðinni. Berið kæra kveðju frændþjóðinni hand- an um haf.“ Frá Leirvík var farið kl. 1 um nóttina á skipi til Haugasunds. Veður var hið fegursta. Stafalogn á sund- um, þokuslæða hjúpaði eyjarnar. Kl. var orðin 5 um morguninn, er vér komum til Haugasunds. Var oss þar þegar visað til gistihúss, og sváfum vér þar til kl. 11 f. h. J?á var oss boðið til matar. Að lokinni máltíð gekk H. Tindeland, kennari með oss að Haraldshaugnum. Hann liggur skamt utan við bæinn. Hver Islendingur, sem kemur til Haugasunds, lilýt- ur að ganga til haugs Haralds hárfagra, því að við sögu

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.