Skinfaxi

Ukioqatigiit

Skinfaxi - 01.03.1926, Qupperneq 20

Skinfaxi - 01.03.1926, Qupperneq 20
20 SKINFAXI Haralds tengisí öfluglega upphaf íslensku þjóðarinn- ar. Á sjálfum haugnum er reist 18 m. há súla, bygð úr granit. Neðst á suðurhlið súlunnar er mynd af víkinga- skipi. Á austurhliðinni stendur skrifað: „Til Minne om Harald Hárfagre som samlede Norges Fylker til et Rige, reiste Nordmenn denna Sten, Tusend Aar efter Slaget i Hafursfjord 872. — Á norðurhlið- inni sjást vopn sögualdarinnar. — Á vesturhliðina er letrað: „Her var Harald Hárfagre Iiauglagt.“ Umhverf- is súluna, skamt út frá Iienni, eru 29 steinar og tákna þeir fvlkin, sem voru i Noregi á dögum Haralds, er hann safnaði í eina ríkisdeild. Á steinana eru letruð lieiti fylkjanna og eru þeir telcnir sinn úr hverju fylki, er hver þeirra um 2l/z m. á hæð. Virðist þessi minnis- varði á marga lund vel valinn Haraldi Hárfagra. Seinna þennan sama dag var farið með oss á mótorbát út á eyjuna Körmt. Eyja þessi er góðkunn lir fornsögunum. Hún er mjög þétthygð, jafnlend og er 4 milur á lengd. par á eynni er mjög gömid kirkja, gerð úr steini. Fyrst bygð 1250. J?ar sjást litlar fornmenjar. Einn legsteinn er þar í kórnum, og er liann gerður yfir þ’ormóð Torfa- son rith. d. 1719. Við aðra hlið kirkjunnar stendur steinn einn mikill, oddmyndaður, nefndist hann Maríu- nálin, er hann á að giska 8 m. á hæð. Hallast hann mjög að kirkjuveggnum. Sennilega hefir þetta verið svo lengi, þvi sögn er til um það, að þá er nálin snerti vegginn verði heimsendir. Að líkindum varna Norðmenn þvi, að þessi spádómur rætist. Næsta dag athuguðum vér hæinn nánar. Altaf var einhver leiðsögumaður með oss. Haugasund er ungur bær. Húsin standa ekki þétt, en reglulega bygð. Víða eru blómgarðar við húsin. Loft- Ið er hreint og tært, sem verið væri upp i sveit. íbúar eru 18.000. Bæjarbúar lifa mest á fiskiveiðum og' versl- un, hafa mikil viðskifti við Island. Um kveldið kl. 8 fór fram glímusýning á íþi'óttavelli hæjarins. Hófst hún með skrúðgöngu og hornablæstri.

x

Skinfaxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.