Skinfaxi

Ukioqatigiit

Skinfaxi - 01.03.1926, Qupperneq 24

Skinfaxi - 01.03.1926, Qupperneq 24
24 SKINFAXI leyfi til að skemta sér í nm nóttina og þyrmdn svo engu, sem í'yrir varð. En betur farnaðist manninum, sein tróð sér milli þils og veggjar áður en álfarnir komu. pegar þeir sáu eng- an mann, fóru þeir að skemta sér og dansa. En þegar alt var komið í besta gengi stökk maðurinn fram á gólf og öskraði: „Dagur! Dagur!“ Við þetta varð álfun- um svo bilt, að þeir stukku burt í dauðans ofboði og skildu allar gersemarnar, sem þeir höfðu liaft meðferð- is, eftir og voru þær svo eign mannsins. — En oft eru þó viðskiftin góð og vinsamleg milli menskra manna og huldufólksins, og gott er lúnum ferðamanni og vilt- um að fá gistingu í Álfahól. S k e s s u r og tröllkarla r búa í hellum, stund- um nærri alfaravegi, og oftast er það mesti óþjóðalýð- ur. Mörgurn þeirra þykir enginn matur betri en manna- ket og reyna þau þá auðvitað að afla þess eftir föngum. Eru þau því næsta óvinsæl, sem von er. Ekki er þó öllum tröllum þannig varið. T. d. var Bergþór gamli í Bláfelli mesti sæmdarkarl. Hann kaus sér legstað þar sem heyrðist bæði klukknahljóð og árniður, en það var í túninu i Haukadal. Skyldi bóndinn þar sækja Bergþór dauðann i helli sinn, en hafa fyrir ómakið það, sem yrði í katli nokkrum undir rúininu. En það skyldi hann hafa til marks, að þegar stafur Bergþórs stæði við dyrn- ar i Haukadal, að þá myndi liann dauður vera. Gekk það alt eftir, sem Bergþór mælti, og fór bóndi með nokkra inenn að sækja líkið. En þegar þeir fóru að hyggja í ketilinn undir rúminu, sýndist þeim liann full- ur af rjúpnalaufi. pótti þeim, sem Bergþór hefði illa gabbað sig. Einn mannanna tók þó nokkuð af laufinu og lét koma i vetling sinn. En þegar þeir voru komnir nokkuð áleiðis til bygða verður manni þessum litið í vetlinginn og sér þá í honum gull í stað rjúpnalaufs. Snéru þeir þá við aftur og vildu hirða meira af þessu gi’iða rjúpnalaufi, en þá kom yfir þá þoka svo mikil að

x

Skinfaxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.