Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.03.1926, Blaðsíða 33

Skinfaxi - 01.03.1926, Blaðsíða 33
SKINFAXI 33 Jafnvel pensill listamannsins nær ekki þeirri fegurð, sem fagurt landslag hefir að bjóða. Skáldið getur ekki komið svo fögrum orðum að þvi, að það jafnist á við fagra náttúrusýn. Allir menn, hve smekkólíkir sem eru, Iiljóta að dást að náttúrunni. Jafnvel töfrast af henni. Menn sem hugsa sér varla þann mun semeráyrktulandi og óyrktu. Hann er svo mikill. J?að er að segja, el’ vel og smekklega er ræktað. Hvorki hér innanlands né á Eng- landi hefi eg fundið eins mikla fegurð og í gróðrarstöð- inni Skrúð, eign Sigtryggs Guðlaugssonar prests að Núpi i Dýrafirði. Eg liefi þó skoðað nokkuð marga listi- garða á Englandi, sem eru 20—30 sinnum stærri en Skrúður með háum risafurum, fögrum vötnum, sem smá bátar fljóta um aftur og fram, fjölda fugla o. fl. En ekkert þetta jafnast þó á við hina aðdáanlegu nið- urröðun og smekklist, sem hvervetna er hægt að sjá í Skrúð. Reynitré standa með jöfnu millibili, fram með báðum langveggjum. J?au veita viðnám vindunum, svo lingjörvar jurtir fá skjól fyrir innan. Hver runni og hver blómjurt er á þeim stað, sem smekldegast er. Enda er líka eigandi reitsins einstakur smekkmaður. J?ennan dag, sem eg kom í Skrúð, 2. ágúst í sumar, ómaði hvarvetna af fuglasöng. J?eir hafa tekið sér þar dvalarstað, vorfuglarnir, ög virðast kunna mjög vel við sig. Gróðrarilmurinn og sætblóma-angan fyltu loftið, svo þar var nokkurskonar ilmparadís. Jón Arnfinsson. Afmælishálíð. Engin þjóð í Norðurálfu kann sögu sína frá upphafi nema Islendingar einir, enda hafa J>eir lagt meiri rækt við sagnfræði en nokkra aðra fræðigrein. Munu liin fornfrægu rit valda mestu um sagnaást þjóðarinnar.

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.