Skinfaxi - 01.03.1926, Side 34
34
SKINFAXI
J?að er Njáln að þakka, að þjóðskáldið reit þessar frægu
Ijóðlínur:
„Lágum hlífir hulinn verndarkraftur
hólmanum þar sem Gunnar sneri aftur.“
Líkt fer mörgum fslendingum og Jónasi, þá er þeir
koma á fræga sögustaði. ]?eir sjá í anda atburði, sem
þar hafa gerst, þeim finst þeir verða gleggri og áhrifa-
meiri en nokkru sinni áður, þeim finst sem þar séu
lieilir lierskarar huldra anda á sveimi, sem halda vörð
um staðinn. Draumsýnir koma og fara, sumar bjart-
ar og fagrar, aðrar myrkar og meini blandnar. Huldu-
vættir þessar sækja að hugum manna,hrjá þá og hrekja,
leiða þá inn á undralönd minninganna, sýna þeim skifti
hels og hugarefna, ástavona og óheillaspora, hæði í lifi
einstaklinga og þjóðar. ]?á má finna glögt hin miklu
sannindi, sem sögð liafa verið, að sagan getur stund-
um ýtt svo fast við mönnum, að þeir hta eins og ný-
vöknuðum augum á lífið.
Nefna mætti marga staði liér á landi, þar sem þeir
viðburðir hafa gerst, er mjög koma við sögu alþjóðar,
en pingvellir við Öxará eru þó frægastir þeirra allra.
]?á er liðin var meir en hálf öld frá því Ingólfur nam
hér land, urðu lielstu menn landsins á eitt sáttir um
að hér skyldu gilda ein lög um land alt. Talið er að
þeir fóstbræður, Grimur geitskór og Úlfljótur, hafi skift
verkum með sér. lllfljótur samdi lög, en Grímur valdi
þingstað, og lét þjóðin sér hvorttveggja vel líka. Alþingi
var sett og allsherjarríki stofnað á íslandi 930 að því
er flestir telja.
Allir eru sammála um, að Grímur hafi valið þirig-
staðinn svo vel, að ekki hafi vcrið hægt að gera það
betur. pangað lágu helstu þjóðleiðir úr öllum lands-
fjórðungum, útsýni var mikið og fagurt, og staðurinn
ágætlega fallinn til fjölmennra fundarhalda, enda undi
þjóðin svo vel við þennan stað, að hún hélt þar Alþing