Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.03.1926, Page 38

Skinfaxi - 01.03.1926, Page 38
:?8 SKINFAXI tóku Norðmehn að leggja rækt við þjóðdansa, og hefir vel tekist. Nú eru þeir dansaðir um endilegan Noreg. íslendingar hafa verið ófrumlegri og litilþægari eu Norðmenn og Færeyingar gagnvart dansi, — almenn- ustu skemtun, sem liér er höfð um hönd. Við höfum látið okkur nægja að apa tildurspor stórborganna, gert okkur ánægða með að skemtun þessi liefði ekkert ann- að en alóþjóðlegan hégóma að bjóða, sem leikur á hverfanda hveli frá mánuði til mánaðar eða frá ári til árs. Tilraunir hafa verið gerðar hér á landi, til þess að iðka þjóðlega dansa, en skamt munu þeir enn á veg komnir. Ungmennafélög ættu að lirinda þessu máli í framkvæmd. Eflaust þarf þó nokkurri viðbúnað, til þess að það geti orðið. Talað hefir verið um, að hingað þurfi að fá kennara frá Noregi eða Færeyjum, en litla trú hefi eg á, að dansinn verði þjóðlegur í höndum er- lendra manna; betur mundi gefast, að senda einhvern héðan að heiman og láta hann kynnast erlendum döns- um. Sendimaður þyrfti að vera fær um að semja dans- ana við islenskar þjóðvisur og íslensk lög. Ef svo reynd- ist, sem ætla má, að hér yrði skortur á þjóðdansvísum og þjóðdanslögum, mundi reynast fremur lé'tt að bæta úr því, því að allmikið er hér af lagasmiðum, og flest skortir okkur meir en visufæra menn. Ungmennafélagar þyrftu að efla hér þjóðdansa næstu árin, svo að þeir geti sýnt þá liér á þjóðhátíðinni 1930. Ekkert er sjálfsagðara en að hér verði sýndar íþróttir á þjóðhátiðinni. Skiftir þá rnestu máli, að til þeirra verði vandað sem mest, hilt hefir minni þýðingu, að margt sé sýnt. Gera má i’áð fyrir, að Iþróttasamhand íslands taki á sína arma flest það, er íþróttir snert- ir, og mun samb. það hafa ærið að starfa, þó að U. M. F. í. tæki að sér islenska glímu, virðist margt mæla með því, að svo verði. pjóðlegast væri, að glímumenn yrðu úr sem flestum héruðum landsins. Mætti vel hugsa sér, að liéraðssambönd ungmennafélaga og sýslufélög

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.