Skinfaxi - 01.03.1926, Síða 45
SKINFAXI
45
Þrastaskógur.
prastaskógur cr einn af fegurstu blettum Suðurlands.
Ungmennafélagar eiga Skóginn. Hann var gefinn þeim
af góðum hug. Einn hinn mesti framfaramaður, sem
landið hefir átt, varð til þess. Hann liafði trú á ræktar-
lund og framfaraþrá ungmennafélaga. pví er skógur-
inn óskabarn þeirra. Hann á að vera þeirra helgilundur.
pau eiga að prýða hann, hlúa að honum og láta hann
vaxa, svo hann verði sönnun þess, að ungmennafélög-
um sé trúandi til að vinna merkileg umhótaverk. Ekki
hafa félögin altaf rækt skyldur sínar við skóginn eins
og þurft hefði að vera, veldur þar féleysi mestu um.
En síðastliðin ár hefir þó mikið á unnist frá því, sem
var um skeið.
Aðalsteinn Sigmundsson skólastjóri á Eyrarbakka
læfir dvalið í skóginum undanfarin sumur. Hann hefir
varið skóginn, grisjað hann og unnið honum gagn með
ýmsum hætti, enda er það sögn kunnugra manna, að
ekki verði hjá því komist, að vörður dvelji í skóginum
að sumrinu, því annars verður hann mjög fyrir átroðn-
ingi, bæði af mönnum og fénaði.
Ungmennafélagar hafa fundið, að hér var unnið gott
verk og nauðsynlegt, þvi heita má að þeir hafi verið ör-
látir i fjárframlögum til skógarins tvö síðastliðin ár.
Skamt er síðan Ungmennasamband Borgfirðinga sendi
200 kr. gjöf til skógarins. Á það þakkir skilið fyrir rausn
sina.
Ef tvö eða þrjú héraðssambönd sýndu skóginum jafn
mikið örlæti á næstu árum eins og Borgfirðingar, mundi
verða kostur á að hlynna vel að honum og láta hann
taka miklum framförum.
Hingað til hafa Sunnlendingar einir stutt skóginn
með fjárframlögum, en illa er þá höfðingslund Norð-
lendinga aftur farið, el’ þeir sitja lengi hjá.