Skinfaxi - 01.03.1926, Blaðsíða 48
18
SKINFAXI
forna. par ætti að verða samkomustaður ungmennafé-
laga ár hvert. Margt mðelir með að svo verði, svo sem
það, að þingstaðurinn liggur i miðju héraði, þar er út-
sýni hið fegursta og leikvellir ágætir. En þó ætti sögu-
helgi staðarins að laða héraðsbúa mest til þess að leggja
rækt við hann.
Nú er Sauðárkrókur orðinn aðal samkomustaður
sýslunnar á vetrum. Er það eðlilegt, og hlýtur svo að
verða. U. M. F. Tindastóil hefir reist þar ágætt sam-
komuhús, í félagi við nokkra menn, sem búsettir eru í
kauptúninu. Líklegt er að hús þetta komi ungmenna-
félögum sýslunnar að góðu liði, og víst er um að mjög
hætir það úr húsnæðisvandræðum, sem lengi liafa verið
á Sauðárkróki fyrir fjölmennar samkomur. En engu að
síður væri það hið þarfasta verk, ef ungmennafélagar
beittust fyrir að fá leyfi til þess að reistur yrði fundar-
skáli við Hegranesþingstað. G. B.
Námskeið.
Víða um land hafa ungmennafélagar haldið námskeið
síðastl. ár í ýmsum greinum. Hafa þau verið l)æði fleiri
og lengri en átt hefir sér áður stað meðal ungmenna-
félaga. pau helstu þeirra eru garðræktar og matreiðslu-
námskeið, sem haldin hafa verið i Árnes- og Rangár-
vallasýslum.
Sigurður Greipsson hefir lika kent á íþróttanámskeið-
um hæði sunnan og vestanlands. Stundar hann kenslu
þessa nær því í allan vetur. Mun kensla Sigurðar auka
mjög íþróttastarfsemi ungmennafélaga, því að það er
fyrir löngu kunnugt, að hann er með færustu og áhuga-
sömustu iþróttamönnum landsins. G. B.
FÉLAGSPRENTSMIÐJAN