Skinfaxi - 01.11.1927, Blaðsíða 19
SKINFAXI
147
hagnýta sér leiðsögn þeirra og aðstoð, svo starf þetta verði
í sem bestu samræmi og með þeim heildarsvip, er aðeins
fæst með náinni samvinnu. Enda er nauðsynlegt, að svo
sé, ef vel á að takast, svo mál þetta nái fram að ganga,
eins fljótt og unt er. Tíminn liður óðum, og verður þvi að
hefjast iumda sem allra fyrst!----
Oss hefir frá upphafi verið það ljóst, að æskilegt væri
að sameina á einum stað alla framkvæmd þessa máls
á vegum sambands U. M. F. í. Hefir það því verið hug-
mynd vor, að stofnuð yrði vinnustofa hér i Reykjavík,
er annaðist litklæðagerð fyrir alla þá, er eigi sæju sér
fært að láta gera klæði sin heima að einliverju eða öllu
leyti. Myndi þetta gera allar framkvæmdir auðveldari og
að mun ódýrari, og tryggði auk þess það s a m r æ m i,
sem vér teljum nauðsynlegt til þess að vel' fari. Var
drepið lauslega á þetta á sambandsþingi í sumar, og tel.j-
um vér vist, að sambandsstjórn sé ljiift, að starf þetta
fari fram á hennar vegum. Munum við undirritaðir ann-
asl framkvæmdir þessa máls i samvinnu við áðurnefnda
listamenn, þar til öðruvísi verður ákveðið. — Til þess að
veita forstöðu saumastofu þessari höfum við fengið vel
færa konu og áhugasama, og liefir liún allmikla reynslu
og þekkingu á þessliáttar saumaskap og öllu er að þessu
lýtur. Verður því starf þetta í góðum liöndum.
Er ætlast til, að saumastofan getí tekið að sér alt það,
er að slarfi þessu lýtur, svo sem útvegun efnis og silfurs,
snið, saum o. s. frv. Má senda fyrirspurnir og pantanir
til liennar með þessari áletrun:
L i t k 1 æ ð a-s a u m a s t o f a n, c/o Prentsmiðjan
,.Acta“, Reykjavík.
Væntum vér svo, að allir ungmennafélagar taki vel
máli þessu, og að í liverju félagi ráðist a. m. k. einn
áhugasamur félagsmaður i að afla sér lilklæða ,s e m
a 11 r a f y r s t! Tíminn er stuttur til móts. Verða svo
þessi fyrstu litklæði til fyrirmyndar og hvatningar, og