Skinfaxi - 01.11.1927, Page 22
150
SKINFAXI
skíðamenn, skautasvell er nóy á pingvallavatni og silungs-
veiði á dorg gætu þeir stundað þar, sem það vildu. Skamt
er þaðan upj) fyrir Kluftir fyrir þá, sem njóta vilja ís-
lenskrar vetrarnáttúru í tigulegustu firnindum öræfanna.
Eg luigsa mér liópa ungra sveina og meyja, sem taka
sig upp og fara lil pingvalla á vetrum og iiafast þar við
nokkra daga. A daginn eru iðkaðar iþróttir og leikir úti.
Á kvöldin sitja menn við langelda i fornbænum, skemta
sér við ræðuhöld, söng og leiki og sofa i lokrekkjum yfir
nóttina.
Umsjón og yfirráð yfir fornbænum ætti að vera í liönd-
um ungmennafélaga eða iþróttafélaga. Eldivið má draga
að á sumrin úr skóginum í pingvallahrauni, án þess að
skóginn sakaði.
Ivostnaður við að gera þenna bæ yrði að vísu allmikill.
En talsvert mætti draga úr beinum peningagjöldum ef
ungmennafélögin og íþróttafélögin gengjust i'yrir þessu.
Margir mundu verða til þess, að vinna þar ókeypis að að-
drætti byggingarefnis og hleðslu veggja. Eittlivað mundi
megá l'á af fé með frjálsum samskotum innan félaganna
og ef til vill gætu þau lagt fé til úr sjóðum sínum, sem
verulega gæti munað um þegar saman kæmi, þó lítið
væri úr hverjum stað. Eg tel einnig sjálfsagt að ríkið legði
fram nokkurt fé til þessa.
pað er sannfæring mín, að ungmennafélögin og iþrótta-
íelögin gætu auðveldlega reist þenna hæ, ef samliuga vilji
væri til þess. Og það er sannfæring mín, að menn mundu
elcki sjá eftir að hafa gert það, þegar fram tíða stundir.
Hitt er miklu líklegra, að yrði þessi bær reistur, þá mundi
þess skaml að I)íða, að svona bæir yrðu reistir í öðrum
landsfjórðungum, þar sem vel hagar til, og að þeir yrðu
miðstöðvar íþróttalifs i héruðunum þegar fram líða
stundir.
Eg leyfi mér að skora á ungmennafélögin og iþrötta-
félögin, að taka þessa uppástungu til athugunar. Og verði
þau mér sammála um gagnsemi þessa fyrirtækis, ættu þau