Skinfaxi - 01.11.1927, Blaðsíða 23
SKINFAXI
151
að bvrja á undirbúningi og framkvæmdum, svo fyrsti
fornbærinn yrði kominn upp fvri'r þjóðhátíðina 1930.
Pétur G. Guðmundsson.
Ungmennasamband Dalasýslu.
Ungmennasamb. Dalasýslu hefir skift um formann ný-
lega. í stað Markúsar Torfasonar í Ólafsdal, sem hefir
verið formaður saml). undanfarin ár, hefir verið kosinn
Jóhann Björnsson í Búðardal.
Ungmennasamb. hefir ákveðið að Ijyggja sundlaug að
Laugum i Sælingsdal. Laugin á að verða steinsteypt og
yfirbygð og að öllu bin vandaðasta. Má þar kenna sund
vetur og sumar, þvi að volgt vatn verður leitt í steinþróna.
Líklegt er að verk þetta geti orðið Dalamönnum hin
mesta menningarbót þá er það er fullgert. Ánægjulegt er
að leggja rækt við svo merkilcgan stað, sem liina forn-
frægu laug þar vestra, sem nú á að taka til sundnotkunar.
Laug þessi mun frægust allra lauga luT á landi, því að
við hana er bundið ástaræfintýri þeirra Kjartans og Guð-
rúnar og Bolla, sem Laxdæla liefir gert ódauðlegt.
Ef einhver nágrannaþjóðin ætti laug þessa og æfintýri
það, sem við hana er tengt, mundi liún verða gerð að
sælustað bæði andlega og likamlega. pangað mundu ár-
lega koma þúsundir manua, sem notuðu heita vatnið sér
til heilsubóta og fólkið mundi dreyma stóra drauma um
hreysti og glæsimensku, vitsmuni og heitar en hamingju-
snauðar óskir, en skáld og Iistamenn mundu víðfrægja
þennan fornfræga stað.
proskabót og lmgarheill ættu Dalamenn að hafa af
slíkri gersemi.
Undanfarin ár hafa ungmennafélög Dalamanna verið
fremur aðgerðalítil, en margt bendir til þess að þeim sé nú