Skinfaxi - 01.12.1927, Qupperneq 2
162
SKINFAXI
röddin talar, og nú segir hún upp hinn þunga dóm:
„Kain, livað hefir þú gert? Blóð bróður þíns hrópar
til mín og bölvun skal fylgja þér, hvar sem þú dvelur
á jörðunni.“
þung er hegning Kains. pung er hegningin, sem hvíl-
ir á lierðum þeirra manna, sem gleyma bróðurskyld-
unum.
Getið þið liugsað ykkur ásakanir lians og sálarkvöl,
er samviska hans vaknar til vitundar um liinn drýgða
glæp?
Getið þið hugsað ykkur Kain, þegar innstreymið frá
æðri öflum fyllir sál lians og lætur hann verða þess
varan, liverjar bróðurskyldurnar séu, og liversu hann
hafi vanrækt þær?
Getið þið liugsað ykkur Kain, þegar hann fer að af-
saka sjálfan sig og spyrja: „Á eg að gæta bróður míns?“
Getið þið hugsað ykkur Kain, þegar samviska hans
svarar þeirri spurningu og segir: „Já, þú átt að gæta
bróður þíns, en hvað hefirðu gert?“
Getið þið liugsað ykkur Kain, þegar liann verður
þess var, að of seint þekti liann bróðurskyldurnar?
Getið þið hugsað ykkur Iíain, hversu sál hans titrar
og skelfur í loga iðrunarinnar, er hann hugsar til hins
voðalega verks?
Getið þið liugsað ykkur hversu Kain — þegar hon-
um verða ljósar bróðurskjddurnar og hann vissi, að
hann átti að gæta bróður síns — hafi þráð það heitt
og innilega, að bróðir sinn mætti lií'a?
En um orðinn hlut þýðir aldrei að sakast. Kain heyr-
ir uppkveðinn örlagadóminn. Hann veit, að hvar sem
liann, bróðurmorðinginn, dveldi á jörðunni, mundu
allir fyrirlíta hann og bölvun fylgja honum.
Eg vildi óska, að þið öll mættuð sækja hið sama i
skaut þessarar sögu og eg hefi sótt, og einmitt þess
vegna hefi eg minst hennar hér.
Eg vildi óska, að þetta raunalega atvik úr lifi Kains,