Skinfaxi - 01.12.1927, Blaðsíða 11
SKINFAXI
171
metnað, göfuga þjóðarsál, sem fyrirlítur nautnasjúkan
ræfilsliátt og hverskonar ósóma. Nú virðist, sem ný
öfl í liði þeirra voldugu hafi reynt að bæta um með-
ferð áfengismála síðustu mánu'ði, ætti þetta að vera
ungmennafélögum mikið gleðiefni og hvöt til þess að
vinna móti áfengisbölinu af meiri áhuga og krafti en
verið hefir. Ungmennafclög verða fyrst og fremst að
vinna fyrir áhugamál sín með þvi að uppala og leið-
beina æskulýðnum. pað er grundvöllur, sem allar var-
anlegar umbætur þurfa að hvila á, en þau verða líka
að nota tækifærin, sem leiðtogar þjóðarinnar rétta að
þeim, róður þeirra verður nógu þungur þó þetta sé
gert, því nóg eru viðfangsefnin, sem þau þurfa og verða
að sinna.
Hvað segir þú t. d. um lieit félaganna gagnvart þvi
að fegra og hreinsa inóðurmálið? Er ekki nokkuð erfitt
að vinna samkvæmt því heiti, svo að verulegu gagni
komi. pó tungan ætti að vera ástfólgnasta óskabarn at-
þjéiðar, er hugsunarháttur margra svo rotinn og óþjóð-
legur að undrum sætir. Bækur og blö'ð er gefið lit, fult
af órökstuddu og aulalega rituðu níði. öllu er mis-
þyrmt, mannorði, málefni og tungu, sorpritum þess-
um er troðið inn á hvert heimili sem til næst, eg’ veit
varla til livers, en áreiðanlega verður það ekki til þess
að hæta hugsunarhátt eða tungutak æskulýðsins. Og við
iþetla bætist ærið undarleg ráðstöfun þeirra, sem í'ara
með mentamál landsins, l. d. að láta kenna hörnum
dönsku meðan þau eru hvorki læs né skrifandi á móður-
máli sínu.Mér þykir vænt um að sjá það af þinggerð síð-
asla samh.þings U. M. F. I. að ungmennafélögin finna
hættuna, sem af þessu stafar, og hugsa sér að skora á
löggjafarvaldið að hæta úr henni. Ungmennafélögin
verða að nota þessa aðl'erð þar sem henni verður við
komið. pau verða að liafa svo mikið gagn af lands-
lögum sem auðið er. Nauðsyn þessi skilst best þegar
það er athugað, að sum af þýðingarmestu verkefnum