Skinfaxi - 01.12.1927, Blaðsíða 26
186
SKlNi-'AXX
Til Helga Valtýssonar
á fimmtíu ára afmæli hans.
Betri var á vetri
vart borinn þjóð skarti.
Vala söng í sölum
sigri þrungin ljóð vigra,
spáði dreng spöku ráði,
— spunninn var þráður unninn —,
varp geisla Vilmeiðs garpi
Vegtams lund og Braga.
Listir gaf Týrr án lasta,
léði Hlórriði téðar
hildar gáfur gildum
grepp er flest nam lireppa:
„]?or til pjasis spora
þjóðmálum, og ljóða
eld, sem ógnum seldi
ættlera kyn og þætti“.
Settust Regin og réttu
röskum dreng örlög, vöskum
dáð gáfu, dýrra ráða
dróttleika, vits og þróttar;
kveikjueld í köldum
kundum ísa-grundar.
Svásaðar verk og Sviðris,
Svelgi þjóðlof þig Helgi.
Jóhannes Jósefsson.