Skinfaxi - 01.03.1931, Side 22
66
SKINFAXI
ferðir við peningagerðina fegnum við að sjá. — f
Kóngsbergi er einnig vopnaverksmiðja ríkisins, en
ekki vannst tími til að skoða hana, því að kl. 11
kvöddum við okkar ágætu leiðsögumenn og héldum
af stað á járnbraut upp Numedal, til Rödberg. Sú
leið er einkar fögur, einkum ofantil i dalnum. Á
Rálag-stöðinni kom til móts við okkur Birketveit
skólastjóri og fylgdist með okkur til Rödberg. Þar
er stórt orkuver, 120 þús. liestöfl, sem má auka upp
í 250 þús. hestöfl. Er sú orka notuð mest til ljósa og
iðnaðar víðsvegar um austurlandið. Eflir stundar-
dvöl þar liéldum við áfram í bil upp til Gjeilo, sem
er þorp efst í Hallingdalnum, upp við Bergens-braut-
ina, 830 metra yfir sjávarmál. Leiðin þangað er til-
tölulega hrjóstrug og gróðurlítil, enda liggur hún yfir
hálendi, sumstaðar meir en 1000 metra yfir liafflöt.
— í Gjeilo fengum við um kveldið að sjá Halling-
dans og Hallinghoppið, sem er lireinasta íþrótta-
afrek.
Næsta morgun, 9. ágúst, gengum við upp til selja
og skoðuðum tvö sel og fengum þar ósvikinn sveita-
mat. Þótti okkur það eitt að, live selin voru byggð í
tízkustíl en ekki eins og gömlu selin, sem við víða
sáum af vegi okkar. — Kl. 3 lögðum við enn af stað
eftir Björgvinjarbrautinni, til næstu stöðvar. Hauga-
stöl, en ])að er % stundar akstur. Þar var sezt í bíl
og ekið yfir Hardangervidden, sem er gróðurlítið há-
lendi, líkt og Iloltavörðuheiði, liæst 1240 m. yfir sjáv-
armál. A þessu heiðalendi eru mög fiskivötn, og eru
veiðimannakofar livarvetna meðfram veginum og
kringum vötnin. í fjarska getur hvarvetna að líta
snæviþakin fjöll, og er Ilallingskarvet hæst og glæsi-
legast. Við Fosslihótel var stanzað stundarkorn, til
að skoða Vöringfoss sem fellur fram af 165 m. liá-
um hamri niður í Mobudal. Elcki er þó Vöringfoss
jafn tignarlegur og Rjúlcanfossinn, enda sér maður