Skinfaxi - 01.03.1931, Page 28
72
SKINFAXI
kennilega mann alþýðu manna hér á landi, einmitt um það
leyti, sem um hann er mest rætt í heiminum, í sambandi
við atburði þá, er gerzt hafa i Indlandi hin siðustu misseri.
Um ytra útlit Lýðmenntunar er þess að geta, að það er
sæmilegt. Og verð bókanna má teljast mjög sanngjarnt, mið-
að við bókaverð nú. Yfirleitt gefur það, sem út er komið
safns þessa, hinar beztu vonir um framhaldið. Og ef litið er
til þess, hvernig slíkum söfnum sem þessum hefir tekið ver-
ið erlendis, má búast við, að Lýðmenntun verði vinsæL
Væri því vel farið, og fengi þá útgefandinn hæfileg laun
viðleitni sinnar i þá átt, að auka menningu þeirra landa
sinna, alþýðumanna, er útundan hafa orðið í lífsbaráttunni
og varhluta fara skólafræðslu, fyrir sakir rangláts þjóðskipu-
lags. E. J. E.
Skúlablaðið. Útgevari: Föroya kennarafelag. Blaðstýrari:
Jákup av Skarði. — Færeyskir kennarar eru hér að liefja
blaðútgáfu að nýju og kom sýnishefti i desember, vel úr
garði gert. Ritstjórinn, elzti sonur Simunar av Skarði, skrif-
ar inngang. Þá eru greinar eftir Mikkjal skáld á Ryggi, Jóhan
Kallsoy lögþingisinann og Poul Olsen kennara, en þeir eru
allir þjóðkunnir menn. Skúlablaðið kemur út í 4 heftum á
ári og kostar 2 danskar krónur, auk burðargjalds. Margir
færeyskir kennarar kaupa Skinfaxa, og mega þeir ekki verða
færri, íslenzkir ungmennafélagar, sem kaupa Skúlablaðið. Það
fæst á afgreiðslu Skinfaxa.
Örlög heitir dálítið smásögusafn, sem nýkomið er út eftir
ungan mann, Indriða I n d r i ð a s o n, skálds á Fjalli.
Þetta er frumsmíð og ber noklcur merki þess og hins lika,
að höf. liefir dvalið vestan hafs nokkuð af þroskaárum sin-
um. Ymislegt bendir til þess, að nokkurs megi af höf. vænta,
er honum eykst æfing og þroski.
Gríma. Þjóðsögur. Safnað hefir Oddur Björnsson. Jónas
Rafnar bjó undir prentun. Útgefandi Þorsteinn M. Jónsson.
3 hefti eru komin út af safni þessu, 5 arkir hvert. Eru þar
margar mjög merkilegar þjóðsögur, og verður á engu mark-
að, að slíkan fróðleik þrjóti í vörslum íslenzkrar alþýðu. Út-
gáfa þessi er vönduð um allt, svo sem vænta má af aðstand-
endum hennar, og er verulegur fengur í henni, bæði frá sjón-
armiði þjóðlegra fræða og til skemmtilesturs.
Félagsprentsmiðjan.