Skinfaxi - 01.10.1932, Blaðsíða 13
SKINFAXI
137
hér á ferð, læiur svo um mælt, að furutrén sum á Þing-
völlum sé þroskavænlegust eftir aldri allra þeirra, sem
liann hcfir séð.
Veitið þessu athygli, Ungmennafélagar! Það væri
sæmilegust afmælisákvörðun nú á 25 ára afmælinu,
að hefja nýja, ötula, en umfram allt þrautseiga sókn
um skógræktina.
Þar er um auðveldara verk að ræða, en okkur hefir
grunað — úr því að þessu er svona farið um furuna á
Þingvöllum!
Og enn er ekki liinum mæta manni Tryggva Gunn-
arssyni launaður Þrastaskógur!
Ungmennafélagar!
Verið þess minnug, að sú gjöf var áheit — áheit eins
tiins ágætasta umbótamanns, sem þjóðin liefir alið.
Hann hét á æsku landsins og þá fyrsl og fremst á Ung-
mennafélögin, að reynast þrautseig við að endurklæða
Jandið skógi.
Skinfaxi hét blað Ungmennafélaganna, sem Sam-
bandið gaf út.
Tvö fyrstu árin voru þeir Helgi Valtýsson og Guðm.
Hjaltáson ritstjórar hans. En árið 1911 tók við honum
Jónas Jónsson, síðar ráðherra.
Undir lians stjórn náði þetta blað inikluin vinsæld-
um og miklum áhrifum.
Má fullyrða, að áhrif þau, sem þessi bráðþroska og
gáfaði æskumaður hafði orðið fyrir á námsferðum sin-
um um nágrannalöndin, liafi víkkað sjóndeildarhring
lesendanna eigi all-lítið.
— Einn árangurinn og vísast sá merkasti af starf-
semi Ungmennafélaganna var fólginn í sjálfsupp-
eldi því, sem þau lögðu áherzlu á. Kom það fram í
þvi, að félagarnir voru hetur húnir undir starf hins
fulltíða manns fyrir þá áreynslu og þau áhrif, sem
félagshreyfingiu liafði haft á þá.