Skinfaxi - 01.11.1939, Blaðsíða 10
90
SKINFAXl
innar getur oltið á hinni formlegu hlið þessa máls.
Ættu þeir timar, se'm nú eru, að opna augu manna
fýrir þessu. Það er ekki aðeins, að ófriðartimar leiði
í ljós, hve gersamlega engisverð „vernd“ Dana er okk-
ur, heldur einnig, að okkur má vera af henni hin
mesta hætta. Menn hafa að vísu lagt um of upp úr
dansk-þýzka ,,ekki-árásarsamningnum“, en þó gæti þar
verið vísir annars meira, að Danir flæktust inn í styrj-
öld og yrði þá litið á okkur sem slriðsaðila. Væri þá
von hins versta, svo sem sagan sýnir, er erlendar þjóð-
ir gerðu hér usla vegna útilokunarstefnu Dana í verzl-
unarmálum. Voru ])á íslendingar myrtir vegna hags-
muna danskra kaupmanna.
Rök eru fyrir, að við gerum að engu „Versala-
samning“ okkar íslendinga. Við erum gæfusöm þjóð,
að slíkt kostar ekki mannfórnir, ekki lögleysur, held-
ur aðeins að við vitum rétt okkar. Þetta er stórmál,
rót verður að skapast, öflug alda athafnasamrar þjóð-
ernisvakningar verður að fara um landið. Alda þróun-
arinnar faldar okkur ungmennafélögum. Hér er enn
sem alltaf vettvangur fyrir stefnu okkar. Takmarkið
er: ísland frjálst og fullvalda lýðve'Idi, er fer með
mál sin hvar sem gæta þarf liagsmuna þess. Ekki munu
allir ungmennafélagar hér á einu máli um einstök at-
riði, en sem mest eining þarf að skapast okkar á með-
al um þetta. Félögin verða þegar í vetur að taka málið
til meðferðar á fundum sínum og einkum er nauðsyn
á, að héraðaþingin taki afstöðu til þess, að stefnan
verði sem öruggust eflir næsta sambandsþing, en þetta
mál verður liöfuðviðfangsefni þess. Við ungme'nnafé-
lagar fylgjum þessu máli fram til sigurs. „Islandi allt“
er kjörorð okkar, Islandi, frelsi þess og framtíð öll
viðleitni okkar. Þar er eining margbreytninnar i starf-
semi okkar. Baráttan fyrir fullum skilnaði við Dani
sameinar okkur til alhliða átaka.
Eiríkur J. Eiríksson.