Skinfaxi - 01.11.1939, Blaðsíða 57
SKINFAXl
137
ungur væri þá. Var hann lengst af formaður þess félags fram
á síðustu ár og bar hag þess og störf mjög fvrir brjósti.
Einnig sat hann í stjórn Ungmennasambands Austur-Skafta-
fellssýslu. Hann hafði i ríkum mæli skilyrði til þess að vera
mikill æskulýðsforingi. Ungir menn löðuðust aS honum og
fylgdu honum fúslega og lutu stjórn hans, vegna frjálslyndis
hans og víSsýni, heits á-
huga á þeim málum, s'em
æskumenn unna, einlægni
í málfylgju og drengskap-
ar. Hefir víst enginn al-
]>ingismaSur getaS státaS
af óskiptara og heilla fylgi
æskunnar i kjördæmi sinu
en Þorbergur I>orleifsson.
Þegar Þorleifur á Hólum
lét faf þingmennsku 1938,
eftir 25 ára setu á Alþingi,
var Þorbergur sonur hans
kosinn eflirmaSur hans.
Reyndist liann mjög nýtur
þingmaiSur og lagSi hvar-
vetna gott til mála. Hann
átti öll árin sæti í fjárveit-
inganefnd, og þykir þaS
virSulegt hlutverk og á-
byrgSarmikið. í nefnd- Þorbergur Þorleifsson.
inni og þinginu hélt hann manna fustast fram hlut alls-
lconar menningarmála og var bezti málsvari fagurra lista..
Má U. M. F. 1. muna og þakka vel þá hluldeild, sem liann átti
i ]>ví, að ríkisstyrkur til þess hækkaði fyrir fáum árum.
Fg ræddi oft við Þorberg um málefni Ungmehnafélaganna.
er hann sat hér á þingi, ]>ví að þau mál voru báðum næstai
hjartfólgin. Hafði hann mjög sterkan á.huga á að til fram-
kvæinda kæmu hugmyndir ]>ær, er eg hefi sett fram, um land-
húnaðarstarfsemi Umf., og hét því máli fullu fylgi sínu á
þingi. Nú reynir að vísu á skilning annarra á þvi máli og.
öðrum, er Þorbergur í Hólum bar fyrir brjósti, og skal enguro
vantreyst, er uro þau fjallar. En þar sem Þorbergur var, áttu
góð mál jafnan einlægan fylgismann og traustan. Haiin var
ungmennafélagi.