Skinfaxi - 01.11.1939, Qupperneq 58
138
SKINFAXI
III.
Gísli Pétursson héraðslæknir á Eyrarbakka lézt 19. júní
þ. á. — Hann fæddist 1. maí 1867, að Ánanaustum í Reykja-
vik, en þar bjuggu foreldrar hans, Pétur Gíslason útvegs-
bóndi, alkunnur dugnaðar- og framfaramaður, og Valgerður
ólafsdóttir, föðursystir Ólafs fríkirkjuprests ólafssonar. Gísli
bóf nám í Lærða skólanum 13 ára gamall og lauk stúdents-
prófi 1886. Eftir það gekk
hann í Læknaskólann og
tauk þar embættisprófi
1890, en fór sama ár utan
til frekara náms. Læknis-
störf sín hóf hann fyrst á
Austurlandi, í Fljótsdals-
héraði og Vopnafjarðar,
nokkra mánuði „settur" á
hvorum stað. Vorið 1892
fékk hann veitingu fyrir
aukalæknishéraði í Ólafs-
vik, en Húsaviknrhérað var
veitt honum 1896. Því erf-
iða héraði gegndi hann 18
bezlu starfsár æfi sinnar.
Og þar kvæntist hann einni
hinni ágætustu konu, Aðal-
björgu Jakobsdóttur Hálf-
danarsoniar, hins' stór-
merka forvígismanns kaupfélagshreyfingarinnar. 1914 var
Gísla Péturssyni veitt Eyrarbakka-læknishérað, og því gegndi
hann lil 1937, er hann varð að láta af embætti fyrir aldurs
sakir lögum samkvæmt. Þá liafði hann þó enn fulla orku og
starfsfjör, enda stundaði hann læknisstörf og hafði mikla að-
sókn, þar til hann veiktist af lungnabólgu fáum dögum áð-
ur en hann lézt.
Gísli læknir var óvenjulega vel lærður maður, bæði í sér-
grein sinni og á öðrum sviðum. í læknisfræði aflaði hann
sér jafnan helztu bóka og límarita á höfuðtungum álfunnar
og fylgdist gaumgæfilega með nýjungum. Hann var skarpgáf-
aður maður, nákvæmur, athugull, gefinn fyrir að brjóta við-
fangsefni sin til mergjar og stálminnugur. Þessir eiginleik-
ar og löng starfsreynsla mótuð af þeim, samfara sifelldu
hóknámi i fræðigrein hans og óvenju þroskaðri ábyrgðartil-