Skinfaxi - 01.11.1939, Síða 66
146
SKINFAXI
stendur, þjóðarnauðsyn að hafizt sé handa að leiðbeina pilt-
um i smíðum,er lúta að gerð einföldustu húsmuna.Húsgögn eru
að komast í svo mikið okurverð, að engu tali tekur. Fjöldi
fólks stritast við að vinna sér fyrir algengustu húsmunum,
en þeir kosla ekki minna en 1000 krónur. Auk þessa ei u
munir þessir ekki fyrir nema þá stétt, sem getur haft hús-
næði eftir eigin vali. Aftur á móti gætu handlagnir menn
smíðað hagfeildari húsmuni, sem gerðir væru eftir þörfum
og staðháttum hvers heimilis. 1 efninu, sem fer í hlutina,
virðist leggja minnst verð. Aðalatriðið er í þessu sambandi,
að menn séu færir í að setja hluti saman, fara með ýmis-
konar efni og áhöld. En þetta verður tiltölulega auðvelt, ef
rnenn hafa uppdrætti af húsinununum, — einföldum, snotrum
og þægilegum ásamt leiðbeiningum um efnisval og starfs-
aðferð. Margir hafa sett allmiklar vonir á alþýðuskólana í
þessu efni, en jieir skera við nögl sér fjölda timanna i þessari
grein. Skal þó þakkað það, sem Laugaskólanum hefir orðið
ágengt í þessu efni, ásamt Húsmæðraskólanum þar. Það væri
ekki fjarri sanni, að sendar væru áskoranir til alþýðuskól-
anna um að beita sér fyrir fræðslu í þessari grein, miklu
meir en er; t. d. með námskeiðum.
Eg vil eindregið hvetja nngmennafélaga til að vinna að því,
hver í sínu félagi, að þau hefjist handa í að koma slíkum
námskeiðum af stað hjá sér. Eg hugsa mér, að nemendur
legðu sjálfir til efni í þá muni, sem þeir smíðuðu, einnig á-
höld, og borguðu kennaranum. En félagið legði til búsnæði-
Það mun ekki fjarri sanni, að þegar rætt er um námskeið,
sé oftast rætt um þau fyrir karlmenn eina, en gengið fram
iijá stúlkunum. Nú liggur í augum uppi, að félögunum ber
cins mikil skylda til, að útvega þeim námskeið í sínum sér-
greinum og piltum, þar sem ekki getur farið saman kennsia
samtimis fyrir pilta og stúlkur. Mér er spurn: Hvers vegna
eru ekki sameiginleg söngnámskeið fyrir pilta og stúlkur;
einnig í ijiróltum þar, sem húsnæði er á annað borð þannig,
að auðið er að liggja við; svo og útskurði, prjóni, spuna,
teikningu o. fl.? — Ungmennafélögum er vitanlega engu
síður nauðsynlegt að efna til sérnámskeiða fyrir stúlkur, en
fyrir pilta. Skal eg i því sambandi minna á saumanám-
skeið, hannyrða, vefnaða og prjónanámskeið, að svo miklu
Icyti, sem auðið er, og þar sem ekki eru kvenfélög til að
hrinda jiessum málum í l'ramkvæmd. Eg hefi hevrt stúlkur
segja: „Það er í raun og veru ekki til neins fyrir okknr að
vera í ungmennafélagi, ])ví fyrir okkur er ekkert gert“. Því