Skinfaxi - 01.11.1939, Síða 75
SKINFAXI
155
fvrir góða starfsemi á árinu. I stjórn þess eru: Pétur Jóns-
son, Geirshlíð, Magnús Bjarnason, Skáney og Ásmundur
Jónsson, Deildartungu.
Umf. Stafholtstungna: Hélt 14 daga sundnámskeið með 60
nemöndum. Kennari Gissur Brynjólfsson. Félagið á stóra
.sundlaug, sem er metin á 7500,00 kr. (Stafholtsveggjalaug).
15 dagsverk unnin við vegagjörð og allmikið að trjáplöntun.
Umf. Borg í Borgarhreppi: Á bókasafn, 546 bindi, metið á
2500,00 kr. Vex það jafnt og þétt. Félagið hefir hyggingu
heimavistarskóla til athugunar, í samvinnu við tvö nágranna-
íélög.
Umf. Björn Hítdœlakappi í Hraunhreppi: Undirbýr sjóðs-
stofnun til styrklar skólabyggingu i Hraunhreppi. í sveitinni
er starfandi félag skólabarna í sambandi við Umf. og cr for-
jnaður fél. Guðmundur Eggertsson kennari, leiðbeinandi þar.
Umf. Snæfell, Siykkishólmi: Félagið var stol'nað 22. okt. ’38.
I>að hélt uppi stöðugum íþróttaœfingum frá byrjun nóv. til
áramóta. Þátttakendur 16 stúlkur og 14 piltar. Hlaðinn stíflu-
garður til að halda uppi vatni fyrir skautasvell, um 30 dags-
yerk. Unnu bæði piltar og stúlkur. Æfður blandaður ltór með
rúmlega 20 þátttaköndum. Söngstjóri Jón Eyjólfsson verzlun-
srmaður. Hélt nokkrar skemmtisamkomur og sýndi m. a.
sjónleikinn „Tímaleysingjann“ eftir Holberg. Á fundum voru
flutt nokkur erindi. M. a. Umf. að fornu og nýju (Daníel
Ágústínusson), Benedikt Gröndal (Jóhann Pétursson), Æskan
■og tíðarandinn (Magnús Einarsson). Undirbýr flokkastarf-
semi, er befjast á eftir áramót. Félagar eru 70.
Umf. tíögun ú Fellsströnd: Tók þátt í sundnámskeiði að
Laugum. Sendi menn á íþróttamót U. M. S. Dalamanna og
kappsláttarmót ]>ess. Unnið við hús félagsins og vegagjörð.
Héll nokkrar skemmtanir með ýmsum menningarlegum
skemmtiatriðum.
Uinf. Stjarnan, Saurbæ: Sýndi ýmsa' sjónleiki, 1. d. „Al-
mannaróminn“ og „Happið“. Sendi marga keppendur á
íþróttamót U. M. S. D. og átti 20 nemendur á sundnámskeiði
að Laugum. Kennari Magnús Sigurbjörnsson, Glerárskógum.
Lagði rífJega upphæð til líknarmála, bæði í vinnu og pen-
ingum.
Umf. Unglingur i Geiradal: Ræddi á fundum sínum m. a.:
FTvað getum við gjört til að efla félagslyndi? Efling friðarins.
Getum við ekki lagt niður að blóta? Héraðsskólar, garðrækt
■o. fl. Hélt margar skemmtanir; hafði m. a. skuggamyndir,
iþróttir, erindi, upplestur og dans.