Skinfaxi - 01.11.1939, Qupperneq 76
156
SKINFAXI
Umf. Von á Iiaiiðasandi: Mældi út tvo flugvelli á sléttum
grundum, skammt fyrir sunnan Saurbæ.
Umf. Vestri, Rauðasandshreppi: Tók mörg málefni til um-
ræðu á fundum sínum. Flutt voru eftirtalin erindi: Megin
átök Umf. (Einar F. Guðbjartsson), Karlmennska (Jón G.
Óskarsson). Ilafði samvinnu við nágrannafélögin um skemmt-
analíf og hélt sjálft nokkrar fjölbreyttar skemmtanir. Vann
um 20 dagsverk að garðrækt og nokkur að vegabótum. Vestri
er gamalt og gott félag, en lá niðri um tima. Hefir aftur færzt
fjör í það.
Umf. Vorðbo&i, Þingeyrarhreppi: Sá um iþróttakennslu
með stöðugum æl'ingum tvisvar i viku, tveggja mánaðar tima.
(13 piltar). Halldór Sigurðsson á Bakka, kenndi. Á fundum
rætt m. a.: Ilvort er heppilegra að veita fjármagninu til sjáv-
ar eða sveita? Ilvort er þroskavænlegra fyrir manninn, auð-
vekl lífskjör eða erfið? Æskan og samtíðin. Hafinn undir-
búningur trjá- og garðræktar. Lögð fram vinna til bænda, er
voru að reisa íbúöarhús, alls 25 dagsverk.
Umf. Mýra hrepps: Starfrækir bókasafn með um 100 bind-
um. Tóbaksbindindisflokkur starfar með 40 félögum, allt nið-
ur í 10 ára aklur. Vinnur hann fjölbreytt og mikið starf.
Umf, Vorblóm ú Ingjaldssandi: Minntist á árinu 30 ára
starfsafmælis með fjölbreyttri skemmtiskrá. Á bókasafn með
117 bindum. Vinnur að matjurtagarði 300 m2 að stærð.
Umf. Bifröst, Onundarfirði: Farnar margar skíðaferðir og:
fjallgöngur. Iðkaðir vikivakar og séð um, að yngstu félagar
læri þá jafnan. Mörg erindi flutt á fundum og áherzia lögð á
að velja auðveld umræðuefni, svo að allir geti tekið þátt í
og iðkað orðsins list. Unnið við matjurtarækt og endurbætur
á skíðaskálanum Véstcinsvörðu. Innan félagsins er tóbaks-
bindindisflokkur með 29 félögum, en alls eru i félaginu 32.
Umf. Morgunroði i A.-Húnavatnssýslu: Bókasafn, 200 bindi.
Helztu umræðuefni: Byggingarmál sveitarinnar, kornrækt,
heimilisprýði, söfnun og útskýring rangmæla. Hefir útlána-
starfsemi til endurbyggingar bæja á félagssvæðinu.
Umf. Langnesinga, Þórshöfn: Vinnur að tveimur trjáreit-
um. RæSir bókmenntir, atvinnumál o. fl. Helztu erindi: Ung-
inennafélagshreyfingin (Aðalsteinn Sigmundsson), Dans og
málfundir (Þorkell Árnason).
Umf. Skrúður, Fáskrúðsfirði: Stundaði nokkra matjurta-
rækt. Gefur út handritað blað, er gengur um sveitina, og
styrlcir bókasafn i hreppnum með árlegum fjárframlögum.
Umf. Stöðfirðinga: Átti 10 ára afinæli 24. júlí. Minntist jiess