Skinfaxi - 01.11.1939, Síða 88
168
SKINFAXI
ungmennafélagar svöruðu grein þessari, og þeir hafa enga
ástæðu til annars en að una vel úrslitum ritdeilunnar.
En á aðalfundi stjórnar Sambands ungra Framsóknar-
manna, sem haldinn var á Akureyri skömmu eftir framan-
nefnd átök á prentpappírnum, var samþykkt eftirfarandi
ályktun, er menntamálanefnd fundarins flutti. Ilefir hún ekki
verið birt fyrr en hér:
„Aðalfundur stjórnar S. U. F. lýsir ánægju sinni yfir bar-
áttu margra Umf. fvrir útrýmingu drykkjuskapar af héraðs-
mótum sínum. Yill þó alveg sérstaklega þakka hið myndar-
lega átak borgfirzkra Umf. á s. 1. vori, og væntir, að það megi
verða öllum þeim til fyrirmyndar, sem að almennum sam-
komum standa.“
Bækur.
íslenzkur bókamarkaður hefir auðgazt um allmargt góðra
hóka í sumar og haust. Skal hér getið þeirra, er Skinfaxa
hafa borizt.
Nokkrar ljóðabækur hafa komið út, en aðeins ein þeirra
hefir komið Skinfaxa í höndur: B au g ab r o t eftir Indriða
Þórkelsson ú Fjalli. En það er líka sú hinna nýju ljóðabóka,
sem Skinfaxa er mestur fögnuður í að opna og kynnast. Að
vísu hafa önnur góð skáld sent frá sér ljóð um sama leyti,
t. d. Sigurjón Friðjónsson og Jakob Jóh. Smári. En að Ijóð-
um þeirra er áður aðgangur í bókum, og varla við vexti né
miklum hreytingum að búast. En Indriði á Fjalli gefur sig
nú í fyrsta sinni að prentpappírnum, sjötugur maður og þjóð-
kunnugt skáld um fjóra tugi ára. Einstök kvæði hans hafa
birzt í blöðum og tímaritum. En hér er fyrst færi á að rýna
og meta skáldskap hans í heild.
Baugabrot er allstór bók, 352 bls. þéttprentaðar, í vænu
broti, ljóð og stökur um ýmisleg efni. Sennilega finnst þeim,
sem ókunnugir eru höf. og heimahögum hans, að þarna fari
fullmikið fyrir yrkisefnum úr þröngu umhverfi alþýðu-
mannsins. En ekki þarf margt að lesa í bókinni til að sann-
færast um það, að hér er skáld með ríka og merkilega gáfu
og' óvenju fullkomið vald á máli og formi. Mundu ekki flest
skáld vilja kveðið hafa kvæði eins og „Bólu-Iijálmar“, „Lá-
varður réttlætisins", „Áfram lengra, ofar liærra“, „Syngið,