Skinfaxi - 01.11.1950, Blaðsíða 6
70
SKINFAXI
/a^nui
CjuÍmiuulsí
\jljunesi:
LAUGALAND í HOLTUIVI
Þess hefur verið óskað, að ég segði eitthvað um
félagsheimilið að Laugalandi í Holtum, í Skinfaxa.
Mun ég í stuttu máli lýsa aðdraganda og framkvæmd-
um byggingarinnar.
Ungmennafélagið Ingólfur er stofnað vorið 1908.
A þeim árum fór öflug alda vakningar um landið og
þá festi sá vorhugur rætur, sem hefur verið undir-
staða ungmennafélaganna fram á þennan dag. Þessi
vakning festi rætur hér í sveit, sem svo víða annars-
staðar, og fólkið, bæði yngri og eldri, fylkti liði í félag-
ið. Og félagsandinn festi djúpar rætur, því fólkið átli
athafnaþrá í brjósti. Og því var það, að fljótlega var
hafizt handa um að skapa aðstöðu til sundiðkana með
því að byggja sundlaug, þar sem heitt vatn var fyrir
hendi. Ekki var þetta mikið eða veglegt mannvirki á
nútíma mælikvarða, laugin var hlaðin úr hnausum.
En Jjrátt fyrir það áttu þar margir skemmtilegar stund-
ir og var laugin mikið notuð.
Húsnæði átti félagið ekkert fyrstu árin. En árið
1924 réðist félagið i að reisa hús, sem síðar varð sam-
komu- og fundarhús hreppsins í rúm 20 ár.
Arin 1934—‘36 byggði ungmennafélagið seinsteypta
sundlaug, þar sem hún hafði verið. Stærð hennar er
8x15 m. Var þá von bráðar hafizt handa um sundnám-
skeið bæði fyrir börn og fullorðna og hefur skóla-
sundnámskeið farið þar fram á Iiverju vori síðan.
Og víst er um það, að sundlaugin hefur verið mikið
notuð og verið til mikils hagræðis fyrir stórt byggðar-
lag. Fljótlega var reist bráðabirgðaskýli við laugina.
Á árunum upp úr 1940 var farið að ræða um það