Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.11.1950, Side 61

Skinfaxi - 01.11.1950, Side 61
SKINFAXI 125 Umf. Austri tók á myndarlegan hátt þátt í hátíðahöldum lýð- veldisdagsins 1944 og setti iþróttafólk félagsins svip á daginn með sýningum sinum. Allt þetta sem hér hefur verið talið Umf. Austra til ágætis, er ef vill eklci í frásögur færandi, en þó er það vist að Eski- fjörður hefði verið fátækari i félagslegu og menningarlegu tii- liti ef þetta ungmennafélag hefði ekki verið þar til. Þeir sem i fámenninu búa vita það manna bezt hvað eitt félag getur oft haft mikla þýðingu fyrir heilt byggðarlag þó vissulega séu þar margir aðrir að verki. Áhugaeldurinn kviknar í félögun- um og frumkvæðið að stórum átökum er oft þar. Þannig getur lítið félag oft orðið til þess að marka spor í sögu síns byggðar- lags, og valda framförum i menningarátt. Ég held að það verði ekki um það deilt, að Umf. Austri hafi gert það s.l. 10 ár. Ragnar Þorsteinsson. Skrifstofa Ungmennafélags fslands, Lindargötu 9 A, efstu hæð, er opin alla mánudaga kl. 16—18 og fimmtudaga kl. 16—19. Þar er og innheimta og afgreiðsla Skinfaxa. Ungmennafélagar. Minningarrit U.M.F.Í. 1906—1936 fæst enn hjá sambandinu. Þeir, sem enn hafa ekki eignazt ])essa fróðlegu hók um fyrstu 30 ár Umf. ættu strax að senda pöntun á henni til skrifstofu U.M.F.Í. Verð er kr. 8.00. Aðeins nokkur eintök eru eftir. 2. hefti Skinfaxa 1941 er uppgengið hjá afgreiðslu Skinfaxa. Einhverjir Umf. munu væntanlega eiga þetta hefti í fórum sinum og eru því vin- samlega beðnir að senda afgreiðslu Skinfaxa það, sem til er af þvi, sem allra fyrst. Skinfaxi fæst að mestu frá 1925.

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.