Skinfaxi - 01.11.1950, Síða 90
154
SKINFAXI
trjáplöntur í skógræktarreit sinn aö Stóra-Núpi. Hélt nám-
skeið í dansi og ræðumennsku. Þátttakendur 40. Æfði og sýndi
mörg leikrit.
Umf. Hrunamanna, Hrunamannahreppi, lauk að fullu við
sundlaug sina að Flúðum, sem er frábærlega myndarlegt mann-
virki. Félagið gróðursetur árlega margar trjáplöntur i skóg-
ræktarreiti sína að Flúðmn og Álfaskeiði. Leikstarf er ])ar
jafnan mjög öflugt.
Umf. Ölfusinga, Ölfusi, gróðursetti 4600 trjáplöntur í skóg-
ræktarland sitt, sem er 3 lia. að stærð, og girti það rammlega.
Tók mikilvægan þátt i undirbúningi- og framkvæmd lands-
móts U.M.F.Í. 2. og 3. júlí.
Umræðuefni félaganna eru að vonum margvísleg. Skal hér
nokkurra getið öðrum til fróðleiks.
Rafmagnsmál sveitanna. Fegrun byggðarlagsins. Guðshug-
myndir og guðsþjónustur. Meðfæddir hæfileikar og uppeldi
Atlantshafsbandalagið. Hvaða útvarpsefni er skemmtilegast?
Hvernig húsakynni kýstu helzt? Hvaða íslenzk smásaga þykir
þér bezt? Hvaða starf finnst þér skemmtilegast? Hver er
merkasti viðburður síðasta árs? Geta menn hugsað sjálfstætt
þótt þeir hlusti á úvarp? Hvort er þýðingarmeira starf, bónd-
ans eða húsfreyjunnar? Menningargildi útvarpsins. Slysa-
varnir. Tryggingarmái. Hvaða matur er heilbrigðastur? Skóla-
mál sveitanna. Bóklestur og bókaval.
Samkvæmt lögum U.M.F.Í. ber ungmennasamböndunum að
senda skýrslur félaganna fyrir 1. mai ár hvert. Á þessu er
mikill misbrestur, sem ekki er viðunandi. Mörg sambönd senda
skýrslurnar ýmist seint, frá fáum Umf. eða alls ekki. f flestum
tilfellum er þetta hrein vanræksla stjórna héraðssambandanna.
sem þægilegast eiga með að bafa öru.egt samband við einstök
félög. Mörg sambönd aftur á móti sanna það, að tiltölulega
auðvelt er að standa í skilum með skýrslurnar, eins og Ung-
mennasamband Kjalarnesþings, Skagafjarðar og Eyjafjarðar.
sem senda skýrslur 100% og þessi sem gera það hérumbilr
Ungmennasamband Borgarfjarðar, Snæfellinga, N.-Þingeyinga
og Úlfljótur í A.-Skaftafellssýslu.
Vonandi stendur þetta allt til bóta.
Umf. Einherjar, Vopnafirði vinnur að byggingu félagsheim-
ilis, ásamt fleiri aðilum. Sundlaugarbyggingunni að Selá cr
brátt lokið. Lék Seðlaskipti og ást og mörg fleiri leikrit.
Umf. Fram, Hjaltastaðaþinghá vinnur að byggingu félags-
heimilis hjá Hjaltastað og íþróttavallarbyggingu. Félagið á