Skinfaxi - 01.07.1951, Page 1
Skinfaxi II. 1951
Ný
§jálfstæði§barátta
framundan?
Hefur þú, lesandi góður, gert þér í hugarlund, hve
edvarleg og knýjandi sjálfstæðisbarátta bíður íslenzku
þjóðarinnar í nánustu framtíð? Hefur þú gert þér
Ijósa grein fgrir því, hve víðtæk og almenn þessi sjálf-
stæðisbarátta þarf að verða, ef þjóðin á ekki að bíða
varanlegt tjón á sálu sinni? Hefur þú íhugað, hvern
skerf þú sjálfur getur lagt til þessarar baráttu? Hefur
þú athugað, hvað er i húfi, ef þú situr aðgerðalaus
hjá? Hefur þú áttað þig á því til fullnustu, hve geig-
vænleg hætta steðjar að íslenzkri tungu og þjóðmenn-
ingu?
Ef til vill finnst þér helzt til djúpt tekið í áirinni og
allhvatvíslega spurt. En athugum allar aðstæður kalt
og hleypidómalaust. Erlent herlið hefur á ný setzt að
í landinu. Af stjórnvöldum landsins og miklum meiri-
hluta þjóðarinnar er þetta talið nauðsynlegt varnarlið,
sem einungis sé hingað komið vegna uggvænlegra við-
horfa í alþjóðamálum. Þetta er því vinalið með milli-
ríkjasamning að bakhjarli. Þjóðin getur ekki kaldlynt
við þetta lið né fjandskapazt, því ríkisstjórnin hefur
samið um komu þcss og ber því ábyrgð á veru þess í
landinu. Og þótt margir telji illa nauðsyn, að til
slíks skyldi þurfa að koma, mun það eigi að síður
ýkjulaust mál, að ýmsir fagni komu liðsins, bæði
vegna ríkjandi ástands í heimsmálum og eins af öðr-
4