Skinfaxi - 01.07.1951, Blaðsíða 29
SKINFAXI
77
FÉLAGSHEIMILI IV:
Hlégarður í Mosfellssveit
Hinn 17. marz s.l. var tekið til notkunar nýtt félags-
heimili í Mosfellssveit. Var það nefnt Hlégarður, og
var nafnið valið úr um 50 tillögum um nafn, er fram
komu frá sveitarbúum.
Húsið stendur skammt frá Brúarlandi, sem áður var
samkomustaður sveitarinnar og barnaskóli, en það
bús var löngu orðið of lilið fyrir samkomur í sveit-
inni, og þurfti líka að taka það allt til notkunar fyrir
skólann.
Saga byggingar félagsheimilisins er í fáum orðum sú,
að á fundi sínum 30. nóv. 1947 ókvað breppsnefndin að
beita sér fyrir byggingu félagsbeimilis og að óska eftir
samvinnu þeirra félaga i hreppnum, er blut áttu í
gamla samkomubúsinu, en þau voru: Ungmennafélagið
„Afturelding“ og Kvenfélag Lágafellssóknar.
Akváðu íelögin að taka þátt í byggingunni, eins og
ástæður leyfðu og kusu þau 1 l'ulltrúa livert til þess
að starfa í búsbyggingarnefnd með hreppsnefndinni.