Skinfaxi - 01.07.1951, Blaðsíða 47
SKINFAXI
95
vetninga liafið kvikinyndatöku af atvinnulífi og búnaðarkátt-
um liéraðsins, merkum stöðum, atburðum sem gerast, einstök-
um heimilum og mönnum. Tekur Kjartan Ó. Bjarnason mynd-
ina. Þá er til atbugunar að koma upp byggðarsafni fyrir hér-
aðið.
Allt er þetta þýðingarmikill skerfur til varðveizlu þjóðlegra
verðmæta og minja og ákjósanlegt verkefni Umf. ekki aðeins
í Austur-Húnavatnssýslu heldur um land allt.
Húnavaka.
Ungmennasamband Austur-Húnvetninga hefur undanfarin ár
haldið fræðslu- og skemmtiviku á Blönduósi, sem lilotiS hefur
nafnið Húnavaka. Hún var að þessu sinni dagana 1.—5. mai.
Sótti hana um 1100 manns.
Helztu skemmtiatriði voru þessi: Leikfélag Blönduóss sýndi
sjónleikinn „Hallstein og Dóru“, eftir Einar H. Ivvaran þrisvar
sinnum. Leikfélag Höfðakaupstaðar sýndi sjónleikinn „Póst-
urinn kemur“, einnig þrisvar sinnum. Páll Kolka héraðslækn-
ir flutti fjögur erindi frá Ameríkuför sinni á síðastliðnum
vetri. Gísli Óiafsson skáld frá Eiríksstöðum flutti lcvæði. Karla-
kórinn „Húnar“ skemmti með söng. Kvikmyndasýningar voru
alla dagana, og ýmislegt fleira var til skemmtunar.
Húnavakan hefur jafnan farið ágætlega fram og verið U.M.S.
A.-Hún. til sóma. Væri vel, ef viðar væri hægt að koma upp
slíkum fræðslu- og skemmtivikum, sem ynnu sér slíka liefð
í menningar- og félagslífi liéraðanna.
Breytt tilhögun á útkomu Skinfaxa.
í ár koma út 3 hefti af Skinfaxa, 2 hefti 3 arkir og 1 hefti
4 arkir. Er þetta annað heftið, en þriðja hcftið kemur í
haust. Þessi breyting er gerð samkvæmt samþykkt sambands-
ráðsfundar á síðastl. hausti. Vonandi fellur lesendum þetta
betur í geð, og væri fróðlegt að fá að vita um álit þeirra í
þessu efni.