Skinfaxi - 01.07.1951, Blaðsíða 40
88
SKINFAXI
rétta úr sér skulu allar raðir láta arma falla niður með
hliðum.
14. Réttstaða: Hopp fætur sundur og saman með armsveiflum
út í axlahæð (1—2), en upp yfir höfuð með lófaklappi
(3—4). Á fjórum er gerður snúningur til vinstri 90°. í
sjðasta skiptið skal staðnæmst með fætur sundur og lúta
áfram, styðja höndum á hnén.
15. Á skipun kennarans byrja öftustu menn höfrungahlaup
fram eftir röðinni og svo hver af öðrum. Þegar öftustu
menn eru komnir fram fyrir röðina skulu þeir hlaupa
áfram í hring.
16. Hlaupið og numið staðar í tvöföldum liringjum, aftari röð
styður höndum á axlir þeirra er standa innar i hringnum:
Átta hliðar-hlaupskref til hvorrar liliðar. — Á skipun
kennarans „inn í hringinn — fall“, skulu báðar raðir falla
inn í hringinn. Fremri röðin með vinstri fót fram og
arma teygða upp. Aftari röðin með hægri fót fram og arma
við hlið. Á skipun kennarans „í jafnvægi — upp“, skal
innri röðin fara upp i jafnvægi m'eð arma út og tylla tám
hægri fótar á liné aftari raðar, sem með höndunum skal
styðja við fótinn. Á skipun kennarans „snú“, snúa báðar
raðirnar (hringirnir)) sér við svo þær snúa út úr hringn-
um. Ytri röðin snýr til vinstri og sveiflar örmunum fram
og upp. Innri röðin felli hægri fót að gólfi og snúi sér til
hægri og leggi hendur að hliðum og verði þannig tilbúin
að taka á móti liinum. Innri hringurinn tekur sér þannig
stöðu að baki ytri hringnum á sama hátt og ytri röðin áð-
ur. Ytri röðin fer nú upp í jafnvægi. Á skipun kennarans
„standið upp“, draga þeir í innri hringnum aftari fótinn
að þeim fremri og leggja hendur að liliðum, en þeir j ytri
hringnum leggja aftari fót j gólf, snúa sér til hægri og
fella arma að hliðum (raðir snúi saman).
17. Hlaupið úr hringnum skemmstu leið i raðir til boðhlaups.