Skinfaxi - 01.07.1951, Blaðsíða 38
86
SKINFAXI
þess fótar skulu snúa 45° út á við. í stiginu til baka skal
fimleikamaðurinn reisa sig vel og teygja armana vel út
—upp. Önnur og þriðja æfing skulu renna þannig saman:
Þegar iðkandinn sveiflar örmunum upp í fyrra sinn i
siðustu umferðinni (mótsvarar tölunni þremur), segir
kennarinn „hliðarstig“. Þegar nemandinn gerir teygjuna
(áherzluna, mótsvarar tölunni 4), fellur skipunin „nú“ og
renna því æfingarnar saman.
4. Gleiðstaða með armteygjum út. Armar falla niður með
hliðum, líðandi hliðbeygja, vinstri og hægri (1—2). Hlið-
beygja til vinstri með armsveiflu liægri arms út—upp yfir
höfuð, og hnébeygju hægri fótar og einni teygju (áherzlu
3—4). Þá líðandi hliðbeygju hægri og vinstri o. s. frv. —
í armsveiflunni út—upp skulu olnbogi, úlnliður og fing-
ur vera beinir. — Þessa æfingu skal gera þrisvar á hvora
hlið. — Æfingar nr. 3 og 4 renna þannig saman: Þegar
stigið er út til hægri í síðustu umferð, fyrirslcipar kenn-
arinn „hliðbeygja“ og um leið og hópurinn réttir úr
hægra hné fyrirskipar kennarinn „nú“, og síðan byrjar
talning fyrir æfingu nr. 4.
5. Snúningur til vinstri og hægri (I. röð snýr sér til hægri
en 2. til vinstri o. s. frv.) (5). Síðan fer 2. röð upp i hand-
stöðu en 1. röð tekur á móti o. s. frv. (6). Síðan er skipt
um. — Snúningarnir gerast þannig: 1.—3.—5. röð o. s.
frv. snúa skemmstu leið til hægri, teygja liendurnar fram
og standa viðbúnar til að taka á móti 2.—4.—6. röð o. s,
frv. snúa til vinstri, og sveifla vinstri armi út—niður og
fram, en hinum hægri er aðeins sveiflað fram, einnig skal
dúað lítils háttar í vinstra hné (þá er talið 5), en síðan
farið upp í handstöðu (þá er taliö 6).
Hliðb., snúningur og handst. renna þannig saman: Þegar
hópurinn gerir hliðb. með armsveiflum út í síðasta skipti.
fyrirskipar kennarinn „handstaða", en á teygjunni (áherzl-
unni) „nú“. Þegar skipt er um þá, sem standa á höndum,
skulu þeir sem tóku á móti ekki Játa hendur siga, en þeir
sem koma niður úr liandstöðunni risa upp með vinstri fót
framar og arma teygða fram. Þegar seinni rnenn fara nið-
ur úr liandstöðu, skulu allir stíga fremri fæti að þeim
aftari. Á skipun kennarans hoppa allir út í gleiðstöðu og
snúa fram. Haga þeir lioppinu svo, að þeir koma niður á
rétta staði.
6. Gleiðstaða. Bolbeygja áfram, með klappi í gólf þrisvar. í
hvert sinn eru bil milli lianda lengd. í síðasta sinn skulu