Skinfaxi - 01.07.1951, Blaðsíða 34
82
SKINFAXI
verið meS og liafa áhuga á hópfimleikum. Þá, sem tregir eru
til þátttöku í hópsýningu, má fá á stað í æfingu, vegna þess'
að æfingin er þeim holl og þörf, ef þeir eru t. d. að æfa undir
keppni í frjálsum íþróttum. Þeir lenda í hópsýningunni, ef
að vanda lætur.
Hver sá, sem ætlar að æfa, fær tímaseðilinn i hendur til
þess að æfa eftir lionum heima hjá sér.
Leiðbeinandinn, sem hefur lært æfingarnar hjá sýningar-
stjóranum, nær félögum sínum til samæfinga við og við. Þeg-
ar fer að draga nær hópsýningunni, tekur sýningarstjórinn
sér ferð á hendur, og samkvæmt auglýstri ferðaáætlun mætir
hann á vissum stað lijá hverju félagi og hefur samæfingu,
Daginn fyrir héraðsmót nær liann öllum þátttakendum til
hópæfingar.
Slíkur undirbúningur sem þessi myndi efla mjög félagslíf
og ekki siður íþróttagetu, með þvi að ungmennafélagar tækju
að æfa heima hjá sér reglulega samhliða vinnu sinni.
Reynum þetta, góðir ungmennafélagar! Tímaseðillinn er
saminn af Stefáni Kristjánssyni iþróttakennara og æfður í
hópi íþróttakennara á s.l. liausti.
Tímaseðill.
1. Gangur og hlaup fram í raðir. Ganga skal þannig inn, að
hinir stærstu gangi fyrstir. Þeir nema staðar á öftustu
merkjunum (aftast á svæðinu) og raðirnar liðast siðan
fram (sjá æfingu 1), allir samtímis, unz allir eru komnir
á sína staði, þá nema allir staðar samtímis. Þetta skal gert
hlaupandi.
2. Réttstaða, armteygjur út og upp (rólega, talið upp að 4).
Djúpar og mjúkar hnébeygjur og réttur með armsveiflum
niður—fram—aftur (1) og niður—fram—upp (2) og uppi
ein teygja (áherzla) (3—4). Standa skal með fætur sam-
an, tær snúi beint fram, fingur laust krepptir, standa skal
í allan fótinn (ekki lyfta hæluin). Æfinguna skal gera
mjúkt og liðlega og þrisvar sinnum. Hné skulu vera rétt,
þegar armar eru uppi og þegar armar eru i hæstu stöðu
aftur. Æfing 2 endar í seilstöðu (armar upp) og úr þeirri
stöðu er stigið
3. langt hliðarstig til vinstri með armteygjum út (1). Stíg
til baka með röskri fráspyrnu (réttu úr ökla) og arm-
teygjum upp og þá armsveiflum i kross framan við brjóst
(2—3) og um leið og armar lyftast út af öxlum, er stigið
til liægri og æfingin endurtekin. Æfinguna skal gera þrisv-
ar á hvora hlið. — Hliðarstigið skal vera langt, og tær