Skinfaxi - 01.07.1951, Blaðsíða 45
SKINFAXI
93
Ungmennafélagar!
Vinnið ötullega að aukinni útbreiðslu Skinfaxa. Fáið unga
fólkið, sem er að ganga í félögin til þess að gerast áskrifendur.
Sendið afgreiðslunni jafnóðum nöfn þeirra. Takmarkið er:
Fleiri áskrifendur. Stærra og fjölbreyttara tímarit. Ef helm-
ingur allra Umf. í landinu gerðust áskrifendur að Skinfaxa.
gæti hann stækkað um helming, án þess að hækka í verði.
2. hefti Skinfaxa 1941.
er uppgengið hjá afgreiðslu Skinfaxa. Einhverjir Umf. munu
væntanlega eiga þetta hefti í fórum sínum og eru þeir vin-
samlega beðnir að senda afgreiðslu Skinfaxa það, sem til er
af þvi, sem allra fyrst.
Skinfaxi fæst að mestu frá 1925.
Bók ungmennafélaga.
Ungmennafélag íslands hefur útvegað nokkur eintök af bók
Jens Marinus Jensen, Ad nordlige Veje, sem segir frá starfsemi
ungmennafélaga á Norðurlöndum og heimsókn til þeirra
allra. Þar er skennntilegur þáttur um ferð höfundar til íslands
sumarið 1949 og U.M.F.Í. Verð bókarinnar er kr. 25.00 ísl. auk
kostnaðar við póstsendingu. Ungmennafélagar, sem hug hafa
á að eignast þessa bók, ættu að skrifa eftir henni sem fyrst
til U.M.F.f.
Lausavísnaþáttur.
í ráði er að taka upp lausavísnaþátt í Skinfaxa, eina til
tvær bls. í senn. Þetta gæti beinlínis orðið þáttur lesendanna.
Kannske gætu Umf. kveðizt á, eða héraðssambönd? Sérstak-
lega væru kærkomnar vísur eftir ungt fólk, en allir koma
auðvitað til greina. Sendið Skinfaxa visur, nýkveðnar, eða
gamlar, sem ekki hafa áður birzt. Nöfn verða að sjálfsögðu
að fylgja — og skýringar, ef þurfa þykir.
Samnorræna sundkeppnin.
Skemmtilegt átak alþjóðar.
Sundkeppnin hófst við marga sundstaði landsins þegar
hinn 20. maí, á öðrum sundstöðum ekki fyrr en um mánaða-
mót maí—júní, og á nokkrum stöðum liefst hún eigi fyrr en
15.—20. júní. Allir aðilar, sem áttu að annast skipulag og
framkvæmdir hafa tekið l>au verkefni góðum tökum. Helzt