Skinfaxi - 01.07.1951, Page 25
SKINFAXI
73
Af erlendum vettvangi II.
MALTA — eyja Breta í Miðjarðarliafi
Malta hefur verið nefnd mörgum dýrlegum nöfnum: Gim-
steinn Miðjarðarhafsins, sóley og ástarvé, rós heimsins, hvíld-
arstaður Póls postula, heimkynni riddara heilags Jóhannesar.
Sizt er og fyrir það að synja, að Malta er fögur ey og merki-
leg. Saga hennar er hvort tveggja í senn, fornhelg og nýfræg.
Þó er eyjan aðeins rúmir 27 km á lengd og tæpra 13 km breið
eða um 250 ferkm að flatarmáli. En hún má teljast þéttbýl
mjög, því íbúar eru yfir 30 þús.
Við eina götuna í Möltu eru hof frá dögum nýsteinaldar-
manna á aðra hönd, en á hina höndina nýtízkuíbúðarhús
hafnarverkamanna. Þannig tengist fortíð nútíð, og báðar bygg-
ingar bera vitni um handlagni Maltabúans, því steinhöggvarar
þar hafa um aldir þótt snillingar að byggja úr hinum gula
kalksteini.
Maltabúar eru að líkindum komnir af hinum fornu Föník-
um, og eru þá náskyldir fólkinu beggja vegna Irska hafsins
á eyjunum úti fyrir Skotlandi. Þeir eru gestrisnir menn
og góðhjartaðir. Að sjálfsögðu eru þeir blandaðir ýmsum Ev-
rópuþjóðum, einkum Bretum. Þeir eru stoltir af eylandi sínu
og sögu, en kunna því ekki illa að vera þegnar í brezka
heimsveldinu. Skipakomur eru tíðar til eyjarinnar, og flug-
vélar víða að úr heiminum koma og fara. Mest ber á herskip-
um úr Miðjarðarhafsflota Breta, svo og herskipum annarra
þjóða Atlantshafsbandalagsins.
Ferðamönnum verður tíðrætt um litbrigði og litaskipti á
Möltu. Komir þú loftleiðis til eyjarinnar,virðist þér hún einna
helzt líkjast gulu laufblaði á fagurbláum haffletinum. En þeg-
ar flugvélin tekur að hringa sig niður, sérðu brátt, að eyjan
er allmishæðótt, um hana alla er þéttriðið veganet, og milli
borga, þorpa og bæja eru fjarskalega stuttar vegalengdir. I
rauninni mó heita, að sumar borgirnar skilji lítið sundur nema
nöfnin ein. — En þegar komið er neðar, muntu sjá örlitla
akra, suma á tilbúnum stöllum, ræktaða til hins ýtrasta. Ur
lofti minnir sveitin á Möltu helzt á marglita, tíglótta óbreiðu.
Að líkindum tekur þú fljótt eftir aragrúa af fánum og flögg.
um. Maltabúar eru afar mikið gefnir fyrir að flagga. Séu
flöggin sérstaklega mörg, máttu vera viss um, að hátíð stend-
uir yfir. En komirðu til eyjarinnar án þess að vera viðstadd-
ur trúarhótíð, hefurðu alls ekki komið til Möltu.
Lífskjör á Möltu hafa batnað til muna síðastliðin tuttugu