Skinfaxi - 01.07.1951, Page 48
96
SKINFAXI
BÓKARFREGN
Þorsteinn Einarsson og Stefán P. Kristjánsson:
FRJÁLSAR ÍÞRÓTTIR. Reykjavík, 1951. —
Útg. Jens Guðbjörnsson.
Hér eru nú komnir í bókarformi íþróttaþættir þeir, er Þor-
steinn Einarsson hefur á undanförnum árum ritað i Skinfaxa.
Þessa þætti hóf liann að rita eftir tilmælum Aðalsteins lieit.
Sigmundssonar árið 1941, en þá var Aðalsteinn ritstjóri Skin-
faxa. Hefur Þorsteinn fengið í lið með sér ungan iþrótta-
kennara, Stefán P. Ivristjánsson, og liafa þeir í sameiningu
endurskoðað þættina, aukið við, samið nýja og skipulagt
efnið. Er þetta hin myndarlegasta bók, 226 bls. í Skinfaxa-
broti. Formála ritar Benedikt Jakobsson frjálsíþróttakennari.
Um efnið skal hér ekki rætt, enda lesendum kunnugt að
nokkru. Þetta er að sjálfsögðu fyrst og fremst kennslubók í
frjálsum jþróttum, livort tveggja í senn handbók fyrir íþrótta-
kennara og leiðbeiningar lianda iðkendum íþrótta um að-
ferðir, þjálfun og rétt tök. Til frekari skýringar skal tekinn
kafli úr inngangi Þorsteins Einarssonar:
Tilgangur þessarar bókar er sá að leiða iðkendur frjálsra
íþrótta til skilnings á hinum ýmsu íþróttagreinum og til
réttrar þjálfunar. Hver heilbrigður maður, sem hefur vilja
og kynnir sér bókina nógu vel, á að geta iðkað frjálsar
íþróttir, livar sem hann er. Hann þarf engan fjölda í kring-
um sig. Hann þarf engan glæstan fimleikasal eða eggslétt-
ar, sérbyggðar brautir og flatir. Fjaran, melurinn, holtið.
túnið, mýrin, hlaðvarpinn, herbergið — veita ágæta að-
stöðu til æfinga og þjálfunar, en aðeins, ef viljinn er fyr-
ir hendi.
Ekki er að efa, að stór fengur er að bókinni, og mun.æsku-
lýður landsins að ríkari eftir útkomu hennar. Frágangur allur
er hinn vandaðasti, og ytri búnaður traustur, svo sem liæfir
bók, er notuð verður úti á víðavangi eigi síður en í húsum
inni.
Útgefandi: Sambandsstjórn Ungmennafélaga fslands.
Pósthólf 406 — Reykjavík
Afgreiðsla: Edduhúsinu, Reykjavík, efstu hæð.
Ritstjóri: Stefán Júliusson,
Brekkugötu 22, Hafnarfirði.
FÉLAQSPRENTEMIOJAN H.F.