Skinfaxi - 01.04.1952, Blaðsíða 12
12
SKINFAXI
SkrúSganga íþróttamánna í Reykjavík 1911.
U.M.F.Í. væntir þess, að Uxnf. víðsvegar um landið
sendi keppendur í þær greinar starfsíþrótta, sem ]xar
verður keppt í. Þess verður svo að vænta, að keppni
þessi berist heim i héraðssamböndin og einstök félög.
Margar greinar starfsíþrótta eru það auðveldar i
framkvæmd, að Umf. er ekkert ofvaxið að koma
þeirn á heima í sveitunum, þegar reglur og leiðbein-
ingar hafa verið gerðar um keppni i einstökum grein-
um. Munu þær birtast í Skinfaxa, bæði nú í grein
Þ. E. og siðar.
Fyrsta landsmót U.M.F.Í. var haldið á Akureyri
1909. Síðan 1940 hafa landsmót U.M.F.I. vexáð haldin
reglulega á þriggja ára fresli. Þau hafa náð vinsæld-
um og ítökum í hugum Umf. og þjóðarinnar allrar.
Landsmótin eru löngu orðin fastur og merkilegur
áfangi í félags- og íþróttalífi æskunnar i landinu. Þau
eru bátíð æskunnar, sem ljómi stendur af. Undix--
búningur þeirra hefur verið rælctur af miklum áhuga
viðsvegar um landið og íþróttamenn sótt það i vax-
andi mæli, eins og lxezt sést á eftirfarandi yfirliti frá
þremur síðustu mótunum: