Skinfaxi - 01.04.1952, Page 25
SKINFAXI
25
í gufunum er. Það var auðséð, að fyrst þyrfti að
safna þeim saman, en síðan myndi tiltölulega auð-
velt að vinna úr þeim allan brennisteininn í þar til
gerðum vélum. Sem betur fór liafði þegar fengizt
all-mikil reynsla hér um jarðborun á hverasvæðum,
og var horfið að því ráði til þess að saí'na gufunum
saman á hagkvæman hátt. Sást nú ekki aðeins sá
leikur á borði að hagnýta brennisteininn í þeirri
gufu, sem eðlilega kemur upp, heldur einnig mögu-
leikann til þess að margfalda gufuframleiðsluna •—
og þar með einnig brennisteinsvinnslnna með jarð-
borunum.
Á síðastliðnu sumri var byrjað á rannsóknarbor-
unum á Námafjalli í S.-Þingeyjarsýslu. Eru þar hin-
ar alkunnu Hliðar-námur, sem jafnan liafa verið
beztu brennisteinsnámur landsins. Nú er þeim rann-
sóknum það langt komið að sýnt er, að framleiða
Gos í Námafjalli. Brennisteinshverirnir sjást til hliðar.